Jazzhátíð Reykjavíkur fer fram dagana 25.–30. ágúst 2026. Hátíðin hefur verið haldin árlega frá árinu 1990 og er einn helsti vettvangur jazztónlistar á Íslandi. Hún hefur oft verið kölluð uppskeruhátíð íslensks jazztónlistarfólks og sameinar ár hvert fremstu innlendu flytjendur ásamt áhugaverðum gestum erlendis frá.
Jazzinn dunar í ágúst - Uppskeruhátíð íslensks jazztónlistarfólks