Ísraelsk stjórnvöld vilja koma upp þremur nýjum landtökubyggðum á Gaza. Þau hyggjast einnig verja rúmlega 400 milljónum bandaríkjadala til uppbyggingar á Vesturbakkanum. Landtökubyggðirnar eru ólöglegar samkvæmt alþjóðalögum.
Israel Katz, varnarmálaráðherra landsins, segir stjórnvöld hafa í hyggju að reisa þrjá Nahal-útverði á norðanverðu Gaza. Landtökubyggðirnar hafa gegnt lykilhlutverki í herferðum Ísraela sem hrakið hafa Palestínumenn frá heimilum sínum víða á Vesturbakkanum.
Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísraels, hefur jafnframt tilkynnt fjárveitingu stjórnvalda til tuga nýrra byggða á Vesturbakkanum. Ísraelskir fjölmiðlar segja ríkisstjórnina hafa samþykkt fjárveitinguna í júní en haldið henni leyndri vegna mögulegrar andstöðu Bandaríkjanna við fyrirætlanir sínar.
Þingkosningar fara fram í Ísrael í lok október. Ríkisstjórn Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra keppist nú við að auka yfirráð Ísraels á hernumdum palestínskum svæðum áður en kjörtímabilinu lýkur í haust.
Ráða þegar yfir 65% Gaza-strandarinnar
Í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna segir að ísraelsk stjórnvöld beiti hernámi til að auka yfirráð sín á Vesturbakkanum. Ísraelsku friðarsamtökin Peace Now segja framkvæmdir þegar hafnar við að minnsta kosti sjö byggðir.
Ísrael ræður nú yfir 65% Gaza-svæðisins, að sögn Tamirs Yadai, varayfirmanns ísraelska hersins. Í vopnahléssamkomulagi síðasta árs, sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði milligöngu um, var samið um 53%.
„Ég veit ekki hvernig hægt er að lýsa þessu öðruvísi en sem sigri, þar sem við ráðum yfir 65 prósentum svæðisins og höfum drepið meira en 70 þúsund hryðjuverkamenn hér,“ er haft eftir Yadai í frétt breska fjölmiðilsins Guardian.
Um tvær milljónir Palestínumanna hafast nú við á þeim þriðjungi Gaza sem eftir stendur. Samkvæmt gagnagrunni palestínskra heilbrigðisyfirvalda, sem Ísraelsstjórn hefur sagt vera í meginatriðum nákvæman, hafa yfir 70 þúsund látist á Gaza.
Meira en 21 þúsund þeirra sem létust voru börn, yfir tíu þúsund voru konur yngri en sextíu ára og rúmlega fimm þúsund aldraðir. Spurður hvort hlutfall barna, kvenna og aldraðra teldist til hryðjuverkamanna að hans mati vildi Yadai ekki svara.