Handknattleikskonan Lovísa Thompson gæti verið á förum til portúgalska félagsins Benfica í sumar.
Það er Handkastið sem greinir frá þessu en Lovísa, sem er 26 ára gömul, varð Íslandsmeistari með Val á dögunum.
Hún er uppalin hjá Gróttu en gekk til liðs við Val árið 2018 og lék með liðinu í fjögur tímabil áður en hún samdi við Rinköbing í dönsku úrvalsdeildinni árið 2022.
Lovísa snéri aftur heim til Íslands árið 2023 og samdi við Val á nýjan leik þar sem að hún hefur verið í lykilhlutverki.
Benfica er sem stendur í efsta sæti portúgölsku 1. deildarinnar með þriggja stiga forskot á Madeira þegar tveimur umferðum er ólokið en Benfica hefur orðið Portúgalsmeistari fjögur ár í röð.