Austurfrétt greinir frá. Þar kemur fram að Íris Dröfn hafi unnið hjá sýslumannsembættinu á Austurlandi um árabil og meðal annars verið staðgengill sýslumanns. Hún tekur við embættinu 1. ágúst.
Svavar baðst lausnar úr embætti eftir að hann var ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar. Hann var sýslumaður á Norðurlandi eystra auk þess að vera settur sýslumaður á Austurlandi.
Íris mun gegna embættinu til 1. janúar en þá verða öll sýslumannsembættin sameinuð í eitt sýslumannsembætti Íslands.