Íranski byltingarvörðurinn tilkynnti í kvöld að lokað hefði verið fyrir umferð skipa um Hormússund, þar til annað verður ákveðið.
Ákvörðunin var sögð tekin eftir að varúðarskotum var skotið í átt að skipi sem sjóher Írans segir að hafi ætlað að sigla ósamþykkta siglingaleið um sundið. Í tilkynningu byltingarvarðarins segir að nokkur skip hafi gert tilraun til að sigla eftir þessari siglingaleið. Áhafnir þeirra hafi ekki fylgt skipunum Írana um að breyta stefnu sinni, að því er segir í frétt Reuters.
Mojtaba Khamenei, æðstiklerkur Írans, sór þess eið í dag að hefna föður síns og forvera í embætti, Ali Khamenei, en hann var ráðinn af dögum í fyrstu árásum Ísraels og Bandaríkjanna í febrúar. Í skriflegri yfirlýsingu, þeirri fyrstu síðan útfararathöfn fyrir föður hans hófst fyrir viku, sagði hann að þjóðin kallaði á hefnd og hún yrði óumflýjanleg. Stjórnvöld væru með lista yfir þá sem hefndin myndi beinast að en ekki var uppgefið hverja væri þar að finna.
Þessi hótun Khameneis kom skömmu eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði að tortíma Íran ef honum yrði sýnt banatilræði.
Trump samþykkti í gær beiðni Írana um framhald samningaviðræðna milli Írans og Bandaríkjanna en ítrekaði að vopnahléinu þar væri lokið. Lítið hefur frést af viðræðum milli ríkjanna um nýtt vopnahlé, en helsti ásteitingarsteinninn er umferð skipa um Hormússund.
Abbas Aragchi utanríkisráðherra Írans átti fund með starfsbróður sínum frá Óman í dag. Þeir ræddu um hvernig tryggja megi örugga umferð skipa um Hormússund sem liggur á milli ríkjanna.
CNN greindi frá því í dag að Ómanar hefðu í dag lagt fram drög að samkomulagi um siglingar um sundið. Samkvæmt því þyrftu skip sem sigldu um yfirráðasvæði Írans á sundinu að fá samþykki þarlendra yfirvalda fyrir för sinni. Engir tollar yrðu þó lagðir á siglingar um sundið.