Íranar hafa svarað nýrri tillögu Bandaríkjamanna um frið í landinu. Þetta sagði Esmaeil Baqaei talsmaður utanríkisráðuneytis Írans á blaðamannafundi í morgun. Íranskir fjölmiðlar hafa lýst kröfum Bandaríkjanna sem óhóflegum, en þrátt fyrir það sagði talsmaðurinn að samskipti stæðu enn með aðstoð Pakistana.
Baqaei sagði jafnframt að tækniteymi frá Íran og Óman hefðu hist í Óman til að semja um öruggt flutningskerfi um Hormús-sund.
Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagði í færslu á Truth Social í gær að klukkan tifaði og þeir þyrftu að bregðast hratt við, annars verði ekkert um að semja.