Alþjóðaflugvöllurinn í Kúveit var rýmdur eftir árás Íranshers. Í frétt Reuters er sagt að drónum og flugskeytum hafi verið beint að flugstöðvarbyggingu.
Saud Abdulaziz Al-Atwan, talsmaður varnarmálaráðuneytis Kúveit, segir árásina glæpsamlega stigmögnun af hálfu Írana. Árásin hafi valdið því að fólk særðist auk þess sem byggingin skemmdist talsvert. Í samfélagsmiðlafærslu Al-Atwan greinir hann ekki frá því hve margir særðust en segir þá komna undir læknishendur.
Flugmálayfirvöld hafa fellt niður allar ferðir til og frá flugvellinum. Flugvélum sem voru á leið til Kúveit hefur verið beint annað.
Reglulegt skotmark Íranshers
Seint í gærkvöld greindi stjórn Bandaríkjahers frá því að Íransher hefði beint tveimur flugskeytum að Kúveit sem ýmist hefðu ekki náð skotmarki sínu eða hreinlega fallið í sundur.
Olíuríkið Kúveit er bandamaður Bandaríkjanna. Frá því að stríð Bandaríkjanna og Írans hófst hefur Kúveit verið reglulegt skotmark Írana. Stjórnvöld í Tehran hafa sakað stjórnvöld í Kúveit um að heimila Bandaríkjaher að gera árásir á Íran frá Kúveit.