Stjórnvöld hyggjast afla sér sex til sjö milljarða króna í tekjur af náttúru- og innviðagjaldi sem lagt verður á ferðamenn sem vilja fara að þremur vinsælustu ferðamannastöðunum í eigu ríkisins. Það eru Geysir, Gullfoss og þjóðgarðurinn á Þingvöllum.
Þetta kemur fram í frumvarpsdrögum sem voru lögð fram til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda í dag.
4.500 króna gjald verður lagt á þá sem ekki eru með skattalega heimilisfesti á Íslandi. Er þá miðað við 18 ára aldur. Ríkisfang fólks skiptir ekki máli í þessu samhengi.
Skírteinið sem fæst með greiðslu þess gjalds gildir í eitt ár. Hægt er að fá ódýrara skírteini yfir veturinn, 3.000 krónur frá 1. nóvember til 31. maí.
Tekjurnar af náttúru- og innviðagjaldinu eiga að verða mun meiri en bílastæðagjöld sem falla niður samhliða upptöku gjaldsins. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum hefur innheimt bílastæðagjöld upp á 350 milljónir króna á ári.
Stefnt er að því að hefja gjaldtöku 1. maí. Tekjur á fyrsta ári yrðu fimm milljarðar samkvæmt áætlun stjórnvalda en sex til sjö milljarðar þegar innheimta er komin í fullan gang allt árið.