Allir nýnemar sem uppfylltu inntökuskilyrði fengu skólavist fyrir næsta skólaár. Um 97% fengu pláss í einum af þeim þremur skólum sem þeir völdu í umsókn sinni.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Innritun nýnema í framhaldsskóla fyrir skólaárið 2026–2027 sé nú lokið og alls hafi 5.152 nemendur fengið úthlutaða skólavist, sem sé mesti fjöldi frá upphafi.
79% fengu pláss í fyrsta vali
Í úthlutuninni í ár fengu langflestir nemendur pláss í skóla sem þeir höfðu sjálfir valið.
Alls fengu 4.075 nemendur pláss í þeim skóla sem var þeirra fyrsta val, eða 79% nýnema. Þá fengu 627 nemendur annað val og 292 þriðja val. Samtals fengu því 4.994 nemendur, eða um 97%, skólavist í einum af þeim þremur skólum sem þeir völdu í umsókn sinni.
Aðrir 158 nemendur fengu pláss í framhaldsskóla þar sem laust pláss var í boði. Þannig tókst að tryggja öllum umsækjendum sem uppfylltu inntökuskilyrði skólavist fyrir næsta skólaár.
Þurftu að hafa óvenju háar einkunnir
Aðsókn í framhaldsskóla var mikil í ár og í nokkrum tilvikum þurftu nemendur að hafa óvenju háar einkunnir til að komast inn í eftirsóttustu skólana og námsbrautirnar.
Þar sem umsóknir voru fleiri en laus pláss réðust úthlutanir meðal annars af inntökuskilyrðum og þeim viðmiðum sem gilda um innritun í hverjum skóla.
Heildarfjölda umsókna í hvern skóla, ásamt fjölda innritaðra nemenda, má sjá á síðu Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu á island.is.