Starfsmenn ICE, innflytjendastofnunar Bandaríkjanna, hafa skotið tvo til bana á einni viku í aðgerðum sínum gegn innflytjendum. 26 ára Kólumbíumaður var skotinn til bana í bænum Biddeford í Maine í gær en í síðustu viku var mexíkóskur karlmaður skotinn til bana í Texas.
Atvikið í gær átti sér stað um klukkan sjö að morgni að staðartíma. Að sögn talsmanns ICE höfðu starfsmenn þeirra reynt að stöðva bíl eftir að hafa kannað síðasta þekkta dvalarstað manns sem átti að vísa úr landi. Bílstjórinn reyndi að flýja og ICE-liðinn greip þá til vopna til að tryggja öryggi almennings. Skot hæfði ökumanninn sem lést af sárum sínum.
Myndskeið úr öryggismyndavél sýnir það sem gerðist eftir atvikið. ICE-liðar stöðvuðu þá bílinn sem hafði verið að keyra í hringi um gatnamót, opnuðu hann og drógu út lík.
Angus King öldungadeildarþingmaður Maine hefur krafist rannsóknar á atvikinu. Hann sagði í samtali við sjónvarpsstöðina CNN að maðurinn sem var drepinn, Joan Sebastian Guerrero, hefði ekki verið maðurinn sem ICE-liðarnir voru að leita að. Hann vann sem bílstjóri og bjó í Biddeford ásamt eiginkonu sinni og þriggja ára dóttur.
ICE hefur sent viðkomandi starfsmann í leyfi. Bandaríska alríkislögreglan tekur þátt í rannsókn málsins. Sendiráð Kólumbíu í Bandaríkjunum hefur krafist skýringa frá heimavarnarráðuneytinu.
Fjöldi fólks kom saman í gær til að minnast mannsins og mótmæla drápinu og stefnu Donalds Trump í innflytjendamálum. Þar var haldið á lofti skiltum þar sem þess var meðal annars krafist að ICE-liðar kæmu sér á brott frá Maine.
Þetta er í annað sinn á einni viku sem ICE-liði skýtur innflytjanda til bana. Á þriðjudaginn fyrir viku var mexíkóskur innflytjandi, Lorenzo Salgado Araujo, skotinn í Houston. Heimavarnarráðuneytið sagði að maðurinn hefði verið skotinn í sjálfsvörn eftir að hann hafði ekið á bíl ICE og reynt að keyra niður lögreglumann til að forðast handtöku. Vitni draga þessa frásögn í efa og sonur mannsins hefur krafist rannsóknar.
Araujo hafði unnið byggingarvinnu í Houston í 30 ár og var við það að fá varanlegt landvistarleyfi. Hann var með hreint sakavottorð og börnin hans eru bandarískir ríkisborgarar. Bandarísk þingkona hafði í fjölmiðlum eftir starfandi forstjóra ICE að stofnunin hefði í aðgerðunum verið að leita að manni sem búið var að vísa úr landi og þeir héldu að væri í bíl Araujos. Svo reyndist ekki vera.
Þessir tveir eru þeir fyrstu sem ICE skýtur til bana frá því stofnunin fór í harðar og umdeildar aðgerðir gegn innflytjendum í Minneapolis í janúar. Þar voru tveir mótmælendur gegn aðgerðunum drepnir. Alls hafa níu verið drepnir í aðgerðum ICE frá því Donald Trump tók við sem forseti Bandaríkjanna og kom harðri innflytjendastefnu sinni í framkvæmd.