Íbúðaverð hækkaði lítillega í júní eftir að hafa lækkað í maí og staðið í stað í apríl. Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09% milli mánaða og mældist 113,4 stig. Hún hafði lækkað um 0,44% í maí.
Íbúðaverð hefurhins vegar lækkað ellefu mánuði í röð sé litið til raunverðsþróunar á ársgrundvelli.
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun birti í dagvísitölu íbúðaverðs í júní.
Ef frá er talinn júlímánuður árið 2023 hefur vísitala íbúðaverðs ekki hækkað minna á ársgrundvelli síðan í byrjun árs 2011 þegar fasteignamarkaðurinn var að jafna sig eftir efnahagshrunið.
Vísitalan hefur hækkað um 1,80% síðustu tólf mánuði á sama tíma og verðbólga mældist 5,2%.
Á síðu HMS segir að hækkun vísitölunnar sé drifin áfram af sérbýlisíbúðum um land allt og íbúðaverð hafi lækkað að raunvirði á ársgrundvelli í ellefu mánuði.
Verðþróun var ólík eftir landssvæðum og tegundum íbúða. Á höfuðborgarsvæðinu lækkaði íbúðaverð um 0,09% á milli mánaða en hækkaði á sama tíma um 0,43% á landsbyggðinni.
Verð á sérbýlisíbúðum hækkaði um rúm 1,20% á milli mánaða á bæði höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni á meðan verð á fjölbýlisíbúðum lækkaði um 1,17% til 1,45%.