Íbúar í bænum Kronstorf í norður Austurríki hafa mótmælt fyrirhuguðu gagnaveri Google á svæðinu.
The Times segir að Google ráðgeri að byggja eitt stærsta gagnaver Evrópu á yfir 50 hektara svæði nærri Kronstorf, eða svæði á stærð við 70 fótboltavelli.
Mótmælendur segja að gagnaverið gæti haft áhrif á vatns- og orkubirgðir á svæðinu, sem og dýralíf í nærliggjandi á. Ráðgert er að gagnaverið opni á næsta ári og hýsi netþjóna gervigreindar og skýþjónustu Google, landakort og streymi á YouTube.
Stjórnmálamenn í héraðinu segja að gagnaverið styrki efnahaginn og sýni fram á framþróun á svæðinu.
Yfir 300 mótmælendur komu saman á föstudag á svæðinu þar sem gagnaverið á að rísa til að mótmæla framkvæmdunum. Mótmælendur kalla eftir því að úttekt verið gerð á umhverfisáhrifum gagnaversins og hafa safnað um 10.000 undirskriftum þar sem kallað er eftir því að allir samningar milli stjórnvalda og Google verði gerðir opinberir.
Framkvæmdin er ekki háð umhverfismati þar sem austurrísk lög um umhverfismat ná ekki til gagnavera.