„Í dag eru liðin 5 ár síðan líf mitt breyttist að eilífu“
Alexandra Ada Hilmars Sigurjónsdóttir minnist þess að fimm ár séu liðin frá því henni var nauðgað. Hún kærði en maðurinn svipti sig lífi. Foreldrar hans kærðu hana fyrir rangar sakargiftir en hún var sýknuð.
„Í dag eru liðin 5 ár síðan líf mitt breyttist að eilífu. Fyrir fimm árum var mér nauðgað.“
Þannig byrjar Facebook-færsla sem Alexandra Ada Hilmars Sigurjónsdóttir birti á laugardag.
„Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa. En það sem tók við á eftir varð að löngu og sársaukafullu ferðalagi sem ég hefði aldrei getað ímyndað mér,“ skrifar hún.
„Á meðan kærumálið mitt var enn í gangi svipti gerandi minn sig lífi,“ bætir hún við.
Alexandra lýsir því í færslunni, sem hún gaf Heimildinni leyfi til að fjalla um, hvernig hún fylltist af reiði við að maðurinn þyrfti aldrei að mæta fyrir dóm. En sjálfsvíg hans hafi orðið umfjöllunarefni í fréttamiðlum.
„Stuttu síðar birtust fréttir um sjálfsvíg hans á Vísi, mbl , DV og Mannlífi,“ skrifar hún. „Þar var fjallað um að hann hefði svipt sig lífi eftir ásakanir um kynferðisbrot og talað um hversu góður …