Hvíslað um nýtt starf Áslaugar

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Mynd: Stjórnarráðið
Margir hafa á undanförnum dögum velt fyrir sér hvað hún Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, geri eftir að hafa sagt af sér á Alþingi.
Lengi vel var talið að Áslaug yrði næsti ritstjóri Morgunblaðsins en pabbi hennar er stjórnarformaður Árvakurs, sem á blaðið. Mætti sú hugmynd mikilli mótstöðu hjá stærsta eiganda blaðsins.
Nú er hins vegar hvíslað innan Sjálfstæðisflokksins að Áslaug muni taka við af Sigurði Hannessyni, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, en þingmaðurinn fyrrverandi var auðvitað iðnaðarráðherra um tíma ...