Fleiri innbrot í miðborg Reykjavíkur hafa verið tilkynnt til lögreglu í júlí en vant er. Formaður íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur hvetur nágranna til að fylgjast vel með.
„Við höfum séð óvenju mikið af innbrotum þetta sumarið, meira heldur en við höfum gert undanfarin ár,“ segir Sigrún Tryggvadóttir, formaður Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur.
Samtökin sendu erindi til borgarstjóra sem brást við með því að efna til samráðsfundar á þriðjudag klukkan fimm. Sigrún hvetur fólk til að mæta þar sem innbrotin verða rædd á fundinum.
Samtökin áttu einnig fund með lögreglu sem staðfesti að innbrot væru fleiri núna í júlí en síðustu ár. Flest eru innbrotin í miðborginni. Sigrún bendir fólki á að tilkynna öll innbrot. Hægt er að gera það á netinu hjá lögreglunni.
Ráðleggja fólki að vera ekki með verðmæti sýnileg
Forsvarsmenn fyrirtækja sem selja ýmsar öryggislausnir segja að salan hafi aukist í júlímánuði og mikill áhugi sé á því sem sé í boði til að verjast þjófum.
„Við hjá Öryggismiðstöðinni finnum fyrir töluvert aukinni eftirspurn síðustu vikurnar, bæði frá einstaklingum og fyrirtækjum sem vilja verja sig betur. Öryggiskerfi með myndavélum sem senda viðvaranir í rauntíma gefur tækifæri til þess að bregðast við með skjótum viðbrögðum. Við höfum líka verið að ráðleggja aðilum að vera ekki með verðmæti sýnileg. Ekki skilja eftir reiðufé eða annað sem auðvelt er að koma í verð á glámbekk. Nýta læsanlega verðmætaskápa til þess að verja verðmæti. Huga vel að merkingum og góðum læsingum sem erfiða aðgengi,“ segir Sverrir Ingi Ólafsson, framkvæmdastjóri Öryggislausna hjá Öryggismiðstöðinni.
Mikilvægt að sinna nágrannavörslu
Sigrún segir innbrotin koma illa við þá íbúa sem hafa haft samband við samtökin.
„Það er alveg sama hvað er tekið, það er skelfilegt. Það er bara farið á heimilið hjá þér og, og inn á þitt einkasvæði.“
Á samráðsfundinum verður boðið upp á fræðsluerindi um öryggismál á borð við nágrannavörslu.
„Það er eins og ævinlega mælt með nágrannavörslunni en það er líka að vera athugull í hverfinu, ef maður sér dularfulla umferð og það er verið að stoppa og kíkja í glugga, það er náttúrulega ekki eðlilegt, maður á að láta vita,“ segir Sigrún.