Sundgestir í Sky Lagoon ráku upp stór augu fyrr í dag þegar hvalatorfa háhyrninga kom syndandi úr Skerjafirði framhjá Kársnesi og inn eftir Fossvogi.
Að sögn gesta var um afar tilkomumikla sjón að ræða þar sem hvalirnir voru margir nálægt landi og sumir þeirra aðeins í nokkurra metra fjarlægð frá bökkum baðlónsins.
Ragnheiður Harpa Haraldsdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri Sky Lagoon, sem stundum er nefnt Himnalón, segir að heimsóknir hvala á þessar slóðir séu mun algengari en marga gruni og að starfsfólk og gestir verða mjög gjarnan varir við ýmsar hvalategundir og seli í hafinu í kring.
Háhyrningar, hnúfubakar og selir
„Við verðum gjarnan vör við hvali og seli, og það er mikið um dýralíf í kring um lónið sem er afar skemmtilegt og gleður gesti sérstaklega.“
„Ég hef sjálf séð hvali synda þarna nokkrum sinnum, þá voru það hnúfubakar en svo sjáum við aðallega mikið af selum en það er alveg sama hversu oft maður sér þetta, þetta ar alltaf jafn tilkomumikið.“ segir Ragnheiður í samtali við mbl.is.
Ragnheiður segir mikið dýpi og sterka strauma í firðinum úti fyrir Kársnesi og því leggi e.t.v. hvalir og selir stundum leið sína um svæðið. Hún segist ekki muna eftir því að hvalir hafi lent í neinum vandræðum né að þá hafi rekið á land þarna í kring.
„Ég treysti mér ekki til að fullyrða um hvað dregur hvalina svona nærri, hvort það sé fyrir forvitnissakir eða hvort þeir séu einfaldlega að elta seli eða fiskitorfur, en það er engu síður frábært að vera í svona mikilli nánd við náttúruna,“ segir Ragnheiður að lokum.
