Í gær bárust einnig þær fregnir að Hútar í Jemen ætli nú að setja siglingabann á öll skip Sádí Arabíu sem hyggjast fara um Bab al-Mandeb sund í Rauða hafinu. Um sundið fara um tólf prósent af öllum skipaflutningum heimsins og segjast Hútar með þessu vera að svara Sádum og illri meðferð þeirra á íbúum Jemen síðastliðinn áratug.
Sádar hafa þegar svarað og segjast ætla að verja sín skip af öllum mætti í samræmi við alþjóðalög.