Hútar hafa náð tökum á ströndinni við Rauðahaf og hertóku þrjár mikilvægar eyjar á Rauðahafi í skyndisókn í gær. Ein þessara eyja er Perim-eyja sem er í miðju Bab al-Mandab-sundinu við Rauðahaf, sem tengir Evrópu og Asíu um Rauðahaf og Súez-skurðinn.
Frá þessari eyju geta Hútar gert árásir á olíuflutningaskip frá Sádi-Arabíu og ógnað skipaflutningum um þessa mikilvægu siglingaleið. Talsmaður Húta-hersins segir að öruggt sé fyrir öll skip að sigla um sundið, nema skip frá Sádi-Arabíu.
Engin þjóð flytur út meiri olíu en Sádi-Arabar. Hútar eru hliðhollir Írönum og ef þeir ná fullum tökum á Bab el-Mandeb-sundi gæti það dregið verulega úr flutningi olíu frá Mið-Austurlöndum með tilheyrandi verðhækkunum.
Breska ríkisútvarpið segir að ef Sádar geti ekki flutt olíu um Bab al-Mandab-sundið þurfi olíuflutningaskip að sigla um Súez-skurðinn og þaðan norður fyrir og suður með stöndum Afríku til að koma olíu á markað í Asíu. Það hefði óneitanlega í för með sér verðhækkanir á olíu.
a
Drónaárásir á olíuleiðslu fordæmdar
Drónaárásir voru gerða á olíuleiðslu sem liggur frá austri til vesturs í Sádi-Arabíu á fimmtudagsmorgun. Drónarnir eru sagðir hafa flogið frá Írak og valdið tjóni í héruðunum Riyadh og Medina og olíuleiðslunni var lokað um tíma vegna árásanna.
Frá því að stríðið hófst í Mið-Austurlöndum hefur notkun á leiðslunni aukist vegna lokunar siglingaleiða um Hormússund. Yfirvöld bæði í Sádi-Arabíu og Írak hafa fordæmt árásirnar, Barein, Jórdanía og Katar einnig.
Sádar eru lykilbandamenn Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum og hafa frá árinu 2015 farið fyrir fjölþjóðaher sem styður stjórnarherinn í Jemen. Hútar og alþjóðlega viðurkennd stjórn landsins sömdu um vopnahlé 2022. Þrátt fyrir að það hafi fallið skömmu síðar úr gildi hafði vopnahléð haldið að mestu þar til nýlega.