Í kringum hundrað eftirskjálftar hafa mælst norðvestur af Þórisjökli frá miðnætti.
Tveir skjálftar riðu yfir svæðið í kringum miðnætti, annar 3,8 að stærð og hinn 3,3 að stærð.
Skjálftarnir eru þeir stærstu sem hafa mælst við Þórisjökul frá árinu 2008.
Ingibjörg Andrea Bergþórsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að fyrstu vísbendingar gefi til kynna að þetta sé hefðbundin hrina við flekahreyfingar.
Sérfræðingar skoða virknina
„Það eru þarna virk misgengi og það hafa alveg komið ágætlega stórir skjálftar í Langjökli sjálfum þó að þetta sé stærsti skjálftinn akkúrat þarna í svolítinn tíma,“ segir Ingibjörg.
Hún segir að hreyfingarnar á svæðinu verði skoðaðar frekar í dag með sérfræðingum Veðurstofunnar.
Skjálftavirkni tók að aukast á svæðinu snemma í maí á árinu og hefur verið nokkuð stöðug síðan.