Nokkur breyting varð á meirihlutum á Norðurlandi í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna og eru meirihlutaviðræður ýmist búnar eða langt á veg komnar. Nýir meirihlutar eru á Akureyri, í Norðurþingi, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð og í Skagafirði svo dæmi séu tekin.
Í Skagafirði ganga viðræður Sjálfstæðisflokks og Byggðalistans vel. Von er á fregnum þaðan fyrir helgi. Í samtali við fréttastofu vildi Magnús Barðdal, oddviti Sjálfstæðismanna, ekkert gefa upp varðandi sveitarstjóra en Sigfús Ingi Sigfússon var ráðinn sveitarstjóri af Framsóknarflokknum árið 2018. Í fyrsta sinn í áratugi verður Framsóknarflokkurinn ekki í meirihluta í Skagafirði.
Í Fjallabyggð er töluverðra breytinga að vænta. Nýr meirihluti Jafnaðarmanna og H-lista er í burðarliðnum og er frétta að vænta í dag eða á morgun. Helgi Jóhannesson, oddviti H-listans, sagði í samtali við fréttastofu að starf sveitarstjóra yrði auglýst fljótlega en settur sveitarstjóri er Þórir Hákonarson sem tók við um jólin 2024 eftir að Sigríður Ingvarsdóttir lét skyndilega af störfum.
Dagmar og Jóna áfram á Austurlandi
Dagmar Ýr Stefánsdóttir verður áfram sveitarstjóri í Múlaþingi þar sem Framsókn og Sjálfstæðisflokkur héldu áfram samstarfi sínu og sömu sögu er að segja af Jónu Árnýju Þórðardóttur í Fjarðarbyggð sem hefur verið ráðin sveitarstjóri þar síðan 2023. Áframhaldandi meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hefur endurráðið hana.
Nýr fjögurra flokka meirihluti er í burðarliðnum í Norðurþingi, undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Von er á tilkynningu frá nýjum meirihluta öðru hvoru megin við helgina en ekki hefur verið gefið út hvort að Katrín Sigurjónsdóttir verði áfram ráðin sveitarstjóri en hún hefur sinnt því starfi frá því 2022.
Í Eyjafirði eru breytingar í farvatninu
Á Akureyri var myndaður nýr meirihluti þar sem Framsóknarflokkurinn kom inn í staðinn fyrir Miðflokkinn. Stærsta breytingin var þó sú að Ásthildur Sturludóttir lætur af störfum eftir átta ár í starfi sem ráðinn bæjarstjóri. Við bæjarstjórastólnum tekur Berglind Guðmundsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í bænum.
Í Eyjafjarðarsveit hélt F-listinn meirihluta sínum en Finnur Yngvi Stefánsson lætur af störfum sem sveitarstjóri og hafa Eyfirðingar auglýst stöðuna lausa til umsóknar.
Í Svalbarðsstrandarhreppi ætla listarnir þrír sem buðu fram að vinna saman. Oddvitinn kemur frá H-lista og tilkynnti sveitarstjórnin að Þórunn Sif Harðardóttir verði áfram ráðin sveitarstjóri.
Í Hörgársveit mynduðu G og H listi meirihluta eftir kosningar en báðir listar töpuðu einum manni til Sjálfstæðisflokksins sem fékk tvo menn kjörna af fimm sem sitja í sveitarstjórn. Snorri Finnlaugsson verður endurráðinn sem sveitarstjóri.
Í Dalvíkurbyggð eru meirihlutaviðræður milli K-lista og Framsóknar langt komnar en K-listinn var einungis þremur atkvæðum frá hreinum meirihluta. Á síðasta kjörtímabili starfaði K-listinn með Sjálfstæðisflokknum en ætlar að skipta um samstarfsflokk í meirihlutanum. Oddviti K-listans, Helgi Einarsson, vildi ekki gefa upp í samtali við fréttastofu hvort að þeir myndu endurráða Eyrúnu Ingibjörgu Sigþórsdóttur sem sveitarstjóra en hún hefur verið sveitarstjóri í Dalvíkurbyggð frá 2022.