Eigendur verslunarinnar Andrár á Laugarvegi í Reykjavík urðu eldsvoðans í nótt varar þegar önnur þeirra fékk skilaboð í síma sinn um að brunaviðvörunarkerfið væri farið í gang. Skömmu síðar hafði Securitas samband og lét vita að kviknað væri í.
Steinunn Hrólfsdóttir og Eva Katrín Baldursdóttir flýttu sér að versluninni. Steinunn segir það hafa tekið á að koma á staðinn.
„Það var mjög mikið sjokk að koma hingað að fjórum slökkviliðsbílum, sjúkrabílum og fólkinu sem var úti á hótelinu úti á götu.“
Steinunn og Eva Katrín fengu ekkert að gert meðan á slökkvistarfi stóð. Þær fengu að fara inn í búðina þegar klukkan nálgaðist að verða fjögur. Þær fóru strax í að reyna að bjarga því sem bjargað varð.
Eva Katrín hélt fyrst að kviknað hefði í búðinni en fagnar því mjög að ekki fór svo illa. Eldurinn var bundinn við kjallara hússins.
„Það var mikill reykur inni í búðinni en þetta hefði örugglega getað verið miklu verra,“ segir Eva Katrín. „Þeir loftuðu út og náðu reyknum tiltölulega fljótt út en auðvitað er mengun, lykt og allt þetta í öllu.“
Steinunn og Eva Katrín segja að fyrsta skref sé að hreinsa húsnæðið og laga það sem laga þarf. Þær ætla að kanna hvað sé í lagi af lagernum. Fötin eru geymd í plasti og kössum og því er von til að eitthvað hafi ekki eyðilagst. Þær ætla líka að hafa samband við birgja sína og reyna að koma versluninni í gang sem fyrst.
Eldurinn kviknaði sólarhring áður en fimm ára afmæli verslunarinnar rann upp.
Aldís Rún Lárusdóttir, settur varaslökkviliðsstjóri, segir slökkvistarf hafa gengið vel en lögregla fari með rannsókn á eldsupptökum.
„Það tók smá stund að staðsetja eldinn en þetta var í kjallararými. Reykurinn virðist hafa farið víða og það gerði leitina að upptökum snúna. Kjallarinn er svolítið snúinn eftir að búið var að staðsetja hann en slökkvistarf gekk vel.“
Sjö mínútur liðu frá útkalli og þar til fyrsti bíll kom á vettvang, þá var rýming langt komin.
„Fólki var greinilega brugðið en ég verð nú að hrósa starfsfólki hótelsins. Það voru tveir einstaklingar sem þurfti að bjarga út og þau voru flutt til skoðunar á slysadeild.“