Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði skemmtistað í miðborginni í nótt eftir að í ljós kom að talsverður fjölda ungmenna undir lögaldri var inni á staðnum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjustu dagbók lögreglunnar.
Nóttin var stormasöm víðar um höfuðborgarsvæðið. Í Breiðholti réðst hópur ungmenna á einstakling og var það mál afgreitt með aðstoð barnaverndaryfirvalda. Þá gistu tveir fangageymslur vegna alvarlegra mála; annar var handtekinn í miðborginni fyrir líkamsárás, vopnalagabrot og vörslu fíkniefna, en hinn í Hafnarfirði vegna líkamsárásar.
Í Kópavogi hafði lögreglan afskipti af manni sem reyndist vera í ólöglegri dvöl hér á landi og var hann vistaður í fangaklefa. Á sama svæði var óskað eftir aðstoð vegna ofurölvi ungmennis, og var það mál leyst með aðkomu foreldra.
Að lokum slasaðist einstaklingur í miðborginni eftir að hafa fallið af rafhlaupahjóli. Viðkomandi var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild til aðhlynningar, en ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um alvarleika meiðslanna.