Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar hittir heimilin illa fyrir og réttara væri að breyta þar forgangsröðun. Þetta segja Framsóknarmenn, en flokkurinn kynnti á föstudaginn efnahagstillögur flokksins vegna fjárlaga næsta árs.
Þar var lagt til að takmarka hækkun gjaldskrár stofnana og krónutölugjalda við 2,5%, verðtryggja barnabætur, varðveita vaxtabætur, lækka bankaskatt og afturkalla hækkun komugjalda. Þá er lagt til að menntun, rannsóknir og nýsköpun verði undanþegin aðhaldi og að úttekt á fjármögnun ríkisins verði tekin til heildarendurskoðunar.
Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, segir horfur í efnahagsmálum ekki hafa verið verri í lengri tíma.
„Við sjáum að höggið á heimilin er of mikið og erum búin að reikna það út. Við sjáum að fyrir meðalfjölskyldu, tekjulægri, þá er þetta um 700 þúsund á tveimur árum. Við teljum að þetta sé of hátt, þetta sé of mikill sársauki fyrir heimilin og við leggjum til að forgangsraða öðruvísi þar sem við erum að verja velferðina og stuðla að því að atvinnulífið haldi áfram að vera sterkt,“ segir Lilja.