Höfum setið eftir í bar­áttu við glæpa­hópa - Vísir

Höfum setið eftir í bar­áttu við glæpa­hópa - Vísir

Höfum setið eftir í bar­áttu við glæpa­hópa - Vísir

Um 20 skipulagðir brotahópar eru taldir starfa á Íslandi og hefur þeim fjölgað um helming á einum áratug.

Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn og sviðsstjóri greiningardeildar hjá ríkislögreglustjóra, segir lögreglu hafa haft áhyggjur af þessari þróun um nokkurt skeið. Hann telur frumvarpsdrög sem dómsmálaráðuneytið birti í Samráðsgátt á miðvikudag mikilvægt skref.

„Staðreyndin er líka sú að þróunin á þessu sviði er svo rosalega hröð að við höfum svolítið setið eftir.“

Um tuttugu skipulagðir brotahópar eru taldir starfa á Íslandi og hefur þeim fjölgað um helming á áratug. Nýtt frumvarp á að auðvelda lögreglu að rannsaka starfsemi þeirra.Vilhelm

Karl segir nær öll stærri mál lögreglu sem tengjast skipulagðri brotastarfsemi ná með einhverjum hætti til annarra landa. Brotahóparnir virði engin landamæri og því þurfi íslenska lögreglan að geta unnið með svipuðum hætti og lögregla annars staðar á Norðurlöndunum.

„Það er ekkert í þessu frumvarpi sem er ekki nú þegar á Norðurlöndunum, annaðhvort öllum eða nær öllum með mjög svipuðum hætti,“ segir Karl.

Lögin ná illa utan um brotahópana

Ein helsta breytingin í frumvarpinu snýr að því hvað telst vera skipulagður brotahópur.

Í dag þarf meðal annars að sýna fram á að meginmarkmið hóps, eða stór hluti af starfsemi hans, sé að fremja alvarleg brot með skipulögðum hætti og hagnast á þeim.

Karl segir þessa lýsingu ekki lengur passa við raunveruleikann. Nútímabrotahópar séu oft lausari í reipunum. Þeir séu ekki endilega með skýran leiðtoga, fasta meðlimi eða formlega verkaskiptingu.

„Ákvæðið eins og það er núna endurspeglar svolítið það sem einu sinni var en er ekki lengur. Þess vegna hefur okkur gengið mjög illa að nýta það ákvæði.“

Karl Steinar segir nær öll mál lögreglu vegna skipulagðrar brotastarfsemi tengjast öðrum löndum með einhverjum hætti. Því þurfi íslenska lögreglan að geta unnið með sama hætti og lögregla annars staðar á Norðurlöndunum.Anton Brink

Samkvæmt frumvarpinu gæti samstarf þriggja eða fleiri talist skipulagður brotahópur þótt hópurinn væri ekki formlega uppbyggður. Meðlimirnir þyrftu ekki alltaf að vera þeir sömu og hlutverk þeirra þyrftu ekki að vera fyrir fram ákveðin.

Hópurinn þyrfti þó að hafa starfað um nokkurt skeið og stefna að því að fremja alvarleg brot. Tilviljunarkennt samstarf nokkurra manna um eitt brot ætti því ekki sjálfkrafa að falla undir skilgreininguna.

Ekki þyrfti heldur alltaf að sýna fram á að tilgangurinn væri að græða peninga. Sameiginlegur tilgangur gæti til dæmis verið að beita ofbeldi.

Aðeins hefur tvisvar verið sakfellt hér á landi fyrir þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi. Spurður hvort þröng skilgreining skýrði það tók Karl undir.

„Já, það er þessi þrönga túlkun.“

Allt að átta ára fangelsi

Hámarksrefsing fyrir að gera samkomulag um brot sem tengist starfsemi skipulagðs brotahóps yrði hækkuð úr fjögurra ára fangelsi í átta ár.

Refsing fyrir önnur brot gæti einnig hækkað um allt að helming ef þau eru framin fyrir skipulagðan brotahóp.

Fangelsið á Hólmsheiði. Samkvæmt frumvarpinu yrði hámarksrefsing fyrir að gera samkomulag um brot sem tengist skipulögðum brotahópi hækkuð úr fjögurra ára fangelsi í átta.Vilhelm

Sama ætti við þegar fullorðinn einstaklingur fær barn eða ungmenni undir átján ára aldri til að fremja brot, til dæmis gegn greiðslu eða öðrum ávinningi.

Lögregla fengi jafnframt lengri tíma til að rannsaka stærstu málin áður en þau fara fyrir dóm. Nú má gæsluvarðhald á rannsóknarstigi almennt ekki vara lengur en tólf vikur. Frumvarpið myndi lengja þann tíma í sex mánuði.

Það þýðir ekki að fólk yrði sjálfkrafa úrskurðað í gæsluvarðhald í hálft ár. Dómari þyrfti áfram að samþykkja gæsluvarðhaldið og taka reglulega afstöðu til þess hvort ástæða væri til að framlengja það.

Skýrari heimild til að skoða síma og tölvur

Frumvarpið veitir lögreglu skýrari heimild til að leita að gögnum í símum, tölvum, spjaldtölvum, snjallúrum og öðrum tækjum sem hafa verið tekin við rannsókn máls.

Leitin gæti einnig náð til gagna sem eru vistuð annars staðar en eru þegar aðgengileg í gegnum tækið. Það gætu til dæmis verið ljósmyndir, skilaboð eða skjöl í skýjaþjónustu.

Lögregla fengi þó ekki heimild til að stofna nýjan aðgang, brjótast inn í önnur kerfi eða fylgjast með gögnum sem verða til eftir að leitin hefst.

Í brýnum tilvikum gæti lögregla hafið símhlustun, leynilega myndatöku eða notað staðsetningartæki áður en leyfi dómara liggur fyrir. Málið þyrfti að leggja fyrir dómara innan 48 klukkustunda.Vilhelm

Leyfi dómara þyrfti áður en leitað væri í tækinu. Ef hætta væri á að gögn glötuðust meðan beðið væri eftir slíku leyfi mætti þó hefja leitina strax og leggja málið fyrir dómara eftir á.

Svipuð regla ætti að gilda um símhlustun, upplýsingar um símtöl og önnur samskipti, leynilegar myndavélar og staðsetningartæki. Ef hætta væri á að mikilvæg gögn glötuðust mætti hefja aðgerð áður en leyfi dómara lægi fyrir.

Málið þyrfti þá að leggja fyrir dómara innan 48 klukkustunda. Ef dómarinn samþykkti ekki aðgerðina yrði að stöðva hana og eyða gögnunum sem safnað hafði verið.

Leyfi til slíkra aðgerða gæti gilt í allt að átta vikur í stað fjögurra vikna nú.

Eignir teknar þótt enginn hafi verið dæmdur

Önnur stór breyting er að hægt yrði að taka eignir sem taldar eru tengjast brotastarfsemi þótt enginn hafi verið dæmdur fyrir brotið sem aflaði þeirra.

Þetta gæti til dæmis átt við um peninga, bíla eða aðrar verðmætar eignir þegar sterkar vísbendingar eru um að þeirra hafi verið aflað með brotum en ekki reynist hægt að tengja þær við eitt ákveðið brot.

Með frumvarpinu væri hægt að taka eignir sem taldar eru afrakstur brota þótt enginn hafi verið dæmdur fyrir tiltekið brot. Eigandinn fengi að skýra hvaðan þær komu áður en dómari tæki ákvörðun.Vilhelm

Lögreglan þyrfti að leggja upplýsingar um málið fyrir dómara. Sá sem ætti eignirnar fengi tækifæri til að útskýra hvaðan þær kæmu áður en ákvörðun yrði tekin.

Dómari þyrfti að komast að þeirri niðurstöðu að líklegra væri en ekki að eignirnar tengdust brotastarfsemi.

Andlitsgreining og myndavélar

Frumvarpið myndi einnig skapa grundvöll fyrir sameiginlegu myndavélakerfi lögreglu.

Setja ætti reglur um notkun andlitsgreiningar, búkmyndavéla lögreglumanna og myndavéla sem lesa númer bíla sjálfkrafa.

Laugavegur í miðborg Reykjavíkur. Frumvarpið myndi skapa grundvöll fyrir miðlægu myndavélakerfi lögreglu. Ráðherra ætti síðan að setja reglur um notkun andlitsgreiningar og myndavéla sem lesa skráningarnúmer bíla.Vilhelm

Andlitsgreiningu mætti aðeins nota þegar brýn þörf væri á henni. Tölvukerfi mætti heldur ekki eitt og sér taka ákvörðun sem hefði veruleg áhrif á einstakling.

Einnig á að koma á fót samstarfi lögreglu, annarra opinberra stofnana og fyrirtækja. Þessir aðilar gætu miðlað upplýsingum sín á milli ef þær væru taldar nauðsynlegar til að koma í veg fyrir starfsemi skipulagðra brotahópa.

„Af nógu að taka“

Í skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra kemur fram að um 20 skipulagðir brotahópar séu starfandi hér á landi. Hópunum hefur fjölgað um helming á tíu árum og starfsemi þeirra er sögð hafa orðið umfangsmeiri undanfarin fimm ár.

„Við værum ekki í svona miklum aðgerðum ef við hefðum ekki áhyggjur af þeirri þróun sem er varðandi skipulagða brotastarfsemi og við erum að reyna að gera allt sem við getum til þess að sporna við henni.“

Hann vísaði sérstaklega til þeirra fjölmörgu aðgerða sem lögregla fór í sumarið 2026.

Karl Steinar segir fjölmargar aðgerðir lögreglu í sumar hafa sýnt að af nógu sé að taka í baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi.Vilhelm

Rannsóknir á skipulagðri brotastarfsemi geti tekið langan tíma. Oft þurfi að kalla eftir gögnum frá öðrum löndum og lögregla geti þurft að komast í gegnum mikið magn upplýsinga í símum og öðrum tækjum.

„Þetta eru flókin mál, þetta eru tímafrek mál, þetta eru mannaflsfrek mál.“

Karl segir lögregluna hafa náð góðum árangri í aðgerðum sínum undanfarna mánuði. Næsta skref sé að tryggja að hún geti unnið með sama hætti og lögregla í nágrannalöndunum.

„Það er það sem við höfum verið að benda á, að við getum ekki verið eftirbátar annarra landa sem við erum í samstarfi við.“

#baráttu #eftir #höfum #setið #við


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262929965d/hofum-setid-eftir-i-barattu-vid-glaepahopa

📰 Aðrar fréttir

Kvíði, álag og lélegur svefn geta aukið verki
📅 18.10.2026 👁️ 0
Kvíði, álag og lélegur svefn geta aukið verki
Kvíði, álag og lélegur svefn geta aukið verki Verkir eru algeng­asta ástæða þess að fólk leitar til heil­brigð­is­þjón­ust­unnar. Grund­vall­ar­munur ...
Sólveig Anna ekki sátt - „Ef ég væri ekki svona agalega málefnaleg myndi ég segja öllu þessu fólki að f***a sér“
📅 18.10.2026 👁️ 1
Sólveig Anna ekki sátt - „Ef ég væri ekki svona agalega málefnaleg myndi ég segja öllu þessu fólki að f***a sér“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar andmælir því að of mikið fari fyrir verkalýðsforingjum, þar með talið henni, en ekki nógu mikið fyrir almenn...
Betra að fæla álftina en skjóta hana
📅 18.10.2026 👁️ 0
Betra að fæla álftina en skjóta hana
„Þessi umræða kemur nú oft upp, á hverju hausti, þar sem fuglarnir sækja í kornin, bæði álftir og gæsir. Þetta hefur náttúrlega verið sérstaklega erfi...
Syrgja starfs­mann sem lést í slysi - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Syrgja starfs­mann sem lést í slysi - Vísir
„Það kom stórt skarð í hjarta Kraftbíla og starfsmanna fyrirtækisins um helgina,“ skrifa forsvarsmenn fyrirtækisins Kraftbíla á Akureyri í færslu á Fa...
Ræstinga­kona læstist ó­vart í fanga­klefa í þrjá daga - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Ræstinga­kona læstist ó­vart í fanga­klefa í þrjá daga - Vísir
Atvikið átti sér stað við Bredgade í Kaupmannahöfn þar sem eystri Landsréttur Danmerkur var áður til húsa. Dómstóllinn flutti fyrir fjórum árum og nú ...
„Síðan tók lögregla upp á því að henda táragasi á fjöldann“
📅 18.10.2026 👁️ 0
„Síðan tók lögregla upp á því að henda táragasi á fjöldann“
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, tók þátt í mótmælum í borginni Angers í vesturhluta Frakklands í gær. Mótmæli hafa farið fram víð...
Reyndi að fá endurgreiðslu og bætur eftir að hafa velt bílaleigubíl - Lögregluskýrsla varð honum að falli
📅 18.10.2026 👁️ 2
Reyndi að fá endurgreiðslu og bætur eftir að hafa velt bílaleigubíl - Lögregluskýrsla varð honum að falli
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur hafnað kröfu einstaklings sem leigði bíl af ónefndri bílaleigu um endurgreiðslu og bætur frá fyrirtækinu. Hafði...
Sigmundur Davíð hæðist að RÚV: Fljúgandi Teslan fór fram hjá Ríkisútvarpinu
📅 18.10.2026 👁️ 2
Sigmundur Davíð hæðist að RÚV: Fljúgandi Teslan fór fram hjá Ríkisútvarpinu
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, gagnrýnir fréttaval RÚV í færslu á X frá 17. október. Tilefnið er...
Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpa­vogs - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpa­vogs - Vísir
Þetta kemur fram í samfélagsmiðlafærslu Einars. Aðstæður verði líklegast mjög slæmar við brúnir Eystrahorns á Hvalnesi og í Hvaldal.  „Stórvarasamt ök...
Bótox ekki meðferð þar sem þú vilt spara
📅 18.10.2026 👁️ 2
Bótox ekki meðferð þar sem þú vilt spara
Bótóxmeðferðir í fegrunarskyni njóta mikilla vinsælda um allan heim og Ísland er þar engin undantekning. Einungis tilteknir sérfræðilæknar mega ávísa ...
Dýrasti iPhone-síminn uppseldur á örfáum klukkustundum
📅 18.10.2026 👁️ 2
Dýrasti iPhone-síminn uppseldur á örfáum klukkustundum
Nýr samlokusími tæknirisans Apple seldist upp á örfáum klukkustundum eftir að opnað var fyrir forsölu. Áætlað er að sumar pantanir verði ekki komnar t...
Maðurinn sem lést var Ís­lendingur - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Maðurinn sem lést var Ís­lendingur - Vísir
Þetta herma heimildir Vísis en Rúv greindi fyrst frá. Karlmaðurinn, sem var á fimmtugsaldri, var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir alvarlegt slys á...
Pattra og Brynjar slá sér upp - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Pattra og Brynjar slá sér upp - Vísir
Brynjar Árni er rafeindavirki og mikill jaðaríþróttamaður. Hann birtir reglulega myndir og myndbönd af sér á snjóbretti á samfélagsmiðlum. Parið fór m...
Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ - Vísir
„Það eru komnar Rússagælur víða í samfélaginu. Mér finnst það bara ferlegt,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í viðtali á Spreng...
Fleiri for­eldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaða­bótum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Fleiri for­eldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaða­bótum - Vísir
Dómurinn varðaði þannig útreikning á meðaltali heildarlauna í þeim tilfellum þar sem foreldri starfaði í öðru aðildarríki að samningnum um Evrópska ef...
Ég, hóran
📅 18.10.2026 👁️ 2
Ég, hóran
Ég, hóran Fimmtíu og sjö karl­menn eru grun­aðir um að hafa ekki komið ungri konu til aðstoðar þegar vinir þeirra nauðg­uðu henni í hópi. Hrafn­hildur...
Tímabundið 2,5% þak á hækkun leigu?
📅 18.10.2026 👁️ 2
Tímabundið 2,5% þak á hækkun leigu?
Tímabundið 2,5% þak á hækkun leigu? Hvers vegna ætti einn stærsti orsaka­valdur verð­bólg­unnar að vera und­an­þeg­inn mót­væg­is­að­gerðum? Rík­is­st...
1.800 handteknir eftir mótmælin í gær – 140 ára bygging nánast ónýt
📅 18.10.2026 👁️ 2
1.800 handteknir eftir mótmælin í gær – 140 ára bygging nánast ónýt
Innanríkisráðherra Frakklands segir að skemmdarverk í mótmælunum þar í gær séu til rannsóknar og að skemmdarvörgunum verði refsað. Ein af byggingunum ...
Óeirðir, rán og eldar víða um Frakkland
📅 18.10.2026 👁️ 2
Óeirðir, rán og eldar víða um Frakkland
Óeirðir, rán og eldar víða um Frakkland Mótmælin vegna fram­færslu­kostn­aðar drógu að sér hund­ruð þús­unda manna, en end­uðu í átökum, skemmd­ar­ver...
Nokkrir látnir og særðir í bruna í kanadískri herstöð
📅 18.10.2026 👁️ 4
Nokkrir látnir og særðir í bruna í kanadískri herstöð
Yfirvöld í Kanada lýsa alvarlegu atviki sem leiddi til stórbruna í herstöð í Alberta sem stórslysi. Stjórnvöld hafa staðfest að nokkrir séu látnir og ...
Eignar Ingu Sæ­land plötutitilinn - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Eignar Ingu Sæ­land plötutitilinn - Vísir
Þetta segir hinn þrítugi tónlistarmaður Elvar Smári Júlíusson um nýju plötuna sína Hver og einn verður að ráða sínumnæturstað sem kom út 9. október en...
Flúði tára­gas lög­reglu í Nice - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Flúði tára­gas lög­reglu í Nice - Vísir
Greint hefur verið frá því að um 1.800 manns hafi verið handtekin á mótmælunum víða um Frakkland og um 500 lögreglumenn og slökkviliðsmenn séu slasaði...
Katrín Oddsdóttir: Seyðfirðingar eru sér á parti – hafa ekki lagst kylliflatir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Katrín Oddsdóttir: Seyðfirðingar eru sér á parti – hafa ekki lagst kylliflatir
Það hafði legið fyrir frá upphafi að klár meirihluti Seyðfirðinga var harðlega á móti því að sjókvíaeldi yrði leyft í Seyðisfirði. Í bænum er mikil gr...
Einar með viðvörun: „HÉR ÆTTI ENGINN AÐ VERA Á FERÐINNI Í KVÖLD!“
📅 18.10.2026 👁️ 4
Einar með viðvörun: „HÉR ÆTTI ENGINN AÐ VERA Á FERÐINNI Í KVÖLD!“
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur varar í Facebook-færslu eindregið við því að fólk verði á ferðinni á milli Hafnar í Hornafirði og Djúpavogs í kvöl...
Vara við uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis og skóla við hlið Reykjavíkurflugvallar
📅 18.10.2026 👁️ 4
Vara við uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis og skóla við hlið Reykjavíkurflugvallar
Bæði Isavia innanlandsflugvellir ehf. og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vara við áformum sem felast í tillögu um nýtt deiliskipulag fyrir hinn svokal...
Maðurinn sem lést á Gæsavatnaleið var íslenskur
📅 18.10.2026 👁️ 4
Maðurinn sem lést á Gæsavatnaleið var íslenskur
Maðurinn sem lést í slysi sem varð á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls á föstudagskvöld var íslenskur og búsettur á Norðurlandi. Hann var á ferð með hó...
Ís­lendingur í Frakk­landi og ekki bjóða góðan dag - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Ís­lendingur í Frakk­landi og ekki bjóða góðan dag - Vísir
Fjallað er um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.  Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna segir lyfjafyrirtæki auglýsa sjúkdóma til að komast...
„Ég elska Obbu“ - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
„Ég elska Obbu“ - Vísir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, var í ítarlegu viðtali á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun þar sem hún ræddi...
Vill fækka borgarfulltrúum um þriðjung
📅 18.10.2026 👁️ 4
Vill fækka borgarfulltrúum um þriðjung
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri vill að borgarfulltrúum verði fækkað úr 23 í 15. Þetta segir hún í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Þar segir hún að m...
Upplausn andsetinna stjórnvalda
📅 18.10.2026 👁️ 4
Upplausn andsetinna stjórnvalda
Upplausn andsetinna stjórnvalda Throstur18. október 2026InnlendarLeave a Comment Andsetið Alþingi Þröstur Jónsson ritar að austan. Upplausn og villigö...
Segir risastórt geimskip hafa þotið fram hjá sólinni á nærri ljóshraða
📅 18.10.2026 👁️ 2
Segir risastórt geimskip hafa þotið fram hjá sólinni á nærri ljóshraða
Segir risastórt geimskip hafa þotið fram hjá sólinni á nærri ljóshraða Geimskip?Ekki er þetta Súperman ... Mynd: Nasa UFO-áhugamaður heldur því fram a...
Orðið á götunni: Alþingisvaktinni hleypt af stokkunum?
📅 18.10.2026 👁️ 4
Orðið á götunni: Alþingisvaktinni hleypt af stokkunum?
Næturvaktin, Dagvaktin og Fangavaktin slóu í gegn á sínum tíma með ódauðlega persónu Georgs Bjarnfreðarsonar í forgrunni sem Jón Gnarr gæddi ævarandi ...
Parisians wake up to protest damage and looted shops
📅 18.10.2026 👁️ 4
Parisians wake up to protest damage and looted shops
Violence broke out across France on Saturday during the latest day of demonstrations against conditions in schools and the cost of living.
Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 5
Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni - Vísir
Í Facebook-færslu segir slökkviliðið að 89 útköll á sjúkrabíla hafi verið skráð. Útköll á dælubíla voru þá sjö talsins og þar af þrjú vegna roktjóns. ...
Buggy safari operators face police checks over permits in Lanzarote
📅 18.10.2026 👁️ 4
Buggy safari operators face police checks over permits in Lanzarote
Buggy safari operators in Lanzarote face police checks after Teguise’s mayor admitted the council could not confirm whether companies using local rura...
Þor­gerður Katrín í ítar­legu við­tali - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 5
Þor­gerður Katrín í ítar­legu við­tali - Vísir
En fyrst verður fjallað um vantraust og stífni í samskiptum ríkis og sveitarfélaga með Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra í Garðabæ og nýkjörnum formann...
„Það besta sem ég hef upplifað“
📅 18.10.2026 👁️ 2
„Það besta sem ég hef upplifað“
„Það besta sem ég hef upplifað“ Mynd: Facebook Glúmur Baldvinsson, alþjóðastjórnmálafræðingur, segir það vanmetið að gera ekki neitt og njóta þess ein...
Oddhvöss aldin í fyrsta sinn á Íslandi
📅 18.10.2026 👁️ 4
Oddhvöss aldin í fyrsta sinn á Íslandi
Í útjaðri Þingholtanna í Reykjavík gætir fréttnæmrar frjósemi. Í garði leikskólans Laufásborgar, hefur stærðarinnar tré, hrossakastanía, myndað aldin ...
Green Party leader Zack Polanski says he will not overturn Zionism motion
📅 18.10.2026 👁️ 4
Green Party leader Zack Polanski says he will not overturn Zionism motion
The Green Party leader said, while he wanted to amend it, the motion would stand until 2028.
„Ég held að maður megi semja svona við móður sína” - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
„Ég held að maður megi semja svona við móður sína” - Vísir
Guðrún er stórættuð kona, afar hennar eru Gylfi Þ. Gíslason fyrrverandi menntamálaráðherra og Bjarni Benediktsson eldri – forsætisráðherra. Hún fer yf...
Auðmýkt
📅 18.10.2026 👁️ 4
Auðmýkt
Auðmýkt Eitt helsta ein­kenni nútíma­mann­eskj­unnar er að vita allt best. Eitt helsta ein­kenni nútím­ans er upp­lýs­inga­óreiða, og eitt helsta ein­...
Illindi milli túlks og lögmanns drógu dilk á eftir sér fyrir rannsóknarlögreglukonu - „Ég fékk þvert nei“
📅 18.10.2026 👁️ 4
Illindi milli túlks og lögmanns drógu dilk á eftir sér fyrir rannsóknarlögreglukonu - „Ég fékk þvert nei“
Nefnd um eftirlit með lögreglu hefur beint því til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að sjá til þess framvegis að sakborningar fái úthlutað þeim verje...
Brian May receives surprise award as music stars light up Starmus opening in Tenerife
📅 18.10.2026 👁️ 4
Brian May receives surprise award as music stars light up Starmus opening in Tenerife
Brian May received a surprise honour for his environmental and conservation work as Starmus opened in Santa Cruz de Tenerife last night, Saturday 17th...
France protests: Burnt out cars and shattered glass on Paris streets after protests turn to riots and looting
📅 18.10.2026 👁️ 4
France protests: Burnt out cars and shattered glass on Paris streets after protests turn to riots and looting
Around 1,800 people were arrested after nationwide protests saw outbreaks of violence and vandalism.
Man, 80, who died in light aircraft crash near Loch Lomond named
📅 18.10.2026 👁️ 4
Man, 80, who died in light aircraft crash near Loch Lomond named
The flying instructor has been described as "a gentleman and an experienced aviator" by former students.
Útköll vegna hvassviðris og vatnsleka í gær
📅 18.10.2026 👁️ 4
Útköll vegna hvassviðris og vatnsleka í gær
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór í sjö útköll í gær og í nótt, þar af að minnsta kosti þrjú vegna roktjóns. Þá var slökkvilið kallað út vegna vatns...
Ég upp­lifði mjög sterkt að ég væri að bregð­ast - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Ég upp­lifði mjög sterkt að ég væri að bregð­ast - Vísir
„Ég fer í reglubundna skimun í nóvember á síðasta ári,“ segir Sólveig Jónsdóttir, sem greindist með brjóstakrabbamein í maí. „Það sést ekki neitt og a...
Ísland á tímamótum hvað varðar mansal
📅 18.10.2026 👁️ 4
Ísland á tímamótum hvað varðar mansal
Lögregla rannsakaði þrettán mansalsmál í fyrra en fékk ábendingar um og kannaði 76 til viðbótar. 44 mansalsmál komu á borð Bjarkarhlíðar. Breskur sérf...
Three motorcyclists taken to hospital after collision with car in south Tenerife
📅 18.10.2026 👁️ 4
Three motorcyclists taken to hospital after collision with car in south Tenerife
Three motorcyclists were taken to hospital after a collision involving their bikes and a car in south Tenerife yesterday (Saturday), at 12.45pm on the...
Stella í or­lofi á stóra sviðið - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Stella í or­lofi á stóra sviðið - Vísir
Gamanmyndin Stella í orlofi var frumsýnd í íslenskum bíóhúsum 18. október 1986 og fagnar því fertugsafmæli í dag en í tilefni dagsins greinir Borgarle...