Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði afskipti af þremur mönnum á þriðjudag sem gengu í hús og seldu m.a. handverk og skóladót sem þeir sögðu að væri til styrktar góðgerðarsamtökum.
Mennirnir afhentu íbúum þar sem þeir bönkuðu upp á blað til yfirlestrar með upplýsingum um góðgerðarsamtökin.
Mörgum fannst mennirnir hins vegar heldur ágengir og var einn þeirra m.a. sagður hafa gert ungri konu ósiðlegt tilboð eftir að hann bankaði upp á heimili hennar um leið og bauð varning til sölu.
Stefán Jónsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni í Vestmannaeyjum, staðfestir að lögreglan hafi haft afskipti af mönnunum og rætt við þá.
Kalla eftir myndefni
Að sögn hans voru mennirnir annars vegar með indverskt ríkisfang en hins vegar bandarískt.
„Þessir menn sögðust vera að safna peningum. Við getum ekki staðfest að gerð hafi verið ósiðleg tilboð. Við erum að skoða hvað er til í því en við hvetjum íbúa sem eru með myndefni í Ring-myndavél til þess að snúa sér til okkar ef ástæða þykir til,“ segir Stefán.
Að sögn hans fóru mennirnir sína leið eftir að lögregla spjallaði við þá og að þeir hafi ætlað að dvelja áfram hér á landi um sinn.