Hjalti Már Hauksson hefur tekið við starfi forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar Arion banka sem er hluti af fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði bankans.
Í tilkynningu segir að Hjalti hafi starfað við fyrirtækjaþjónustu hjá Arion í um 16 ár og búi því yfir mikilli reynslu, bæði af lánastarfsemi og fyrirtækjaráðgjöf. Hann hefur samkvæmt tilkynningunni leitt fjölmörg stór fjármögnunarverkefni og stýrt umfangsmiklum verkefnum í fyrirtækjaráðgjöf á starfsferli sínum.
Hjalti Már er viðskiptafræðingur sem útskrifaðist frá Háskólanum í Reykjavík og er með meistarapróf í fjármálahagfræði frá IESE á Spáni.
Áhersla á norðurslóðir
Í tilkynningunni segir einnig að Einar Pálmi Sigmundsson, sem undanfarið ár hefur gegnt starfi forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar, taki við nýju hlutverki á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði og muni leiða viðskiptastýringu gagnvart innlendum og erlendum fagfjárfestum og stefnumótun og viðskiptastjórnun þegar kemur að innviða- og fjármögnunarverkefnum á norðurslóðum.
Arion banki hefur samkvæmt tilkynningunni á undanförnum árum aukið lánveitingar til verkefna á norðurslóðum og markar breytingin nú aukna áherslu á slík verkefni.
