Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit, drottningar Noregs og stjúpsonur Hákonar Noregskonungs fær að áfrýja máli sínu. Hann var sakfelldur fyrir tvær nauðganir og 32 önnur brot í héraðsdómi í Osló í júní, þar á meðal brot í nánu sambandi, ofbeldisbrot og fyrir að rjúfa nálgunarbann í nokkur skipti.
Hann var dæmdur í fjögurra ára fangelsi en sætir stofufangelsi á heimili sínu. Hann fékk leyfi til að fara þaðan í gær til að vera við útför Haraldar V Noregskonungs.
Petar Sekulic, lögfræðingur Høiby, sagði við norska ríkisútvarpið NRK að viðbúið hafi verið að áfrýjunin í heild sinni yrði samþykkt. Ný réttarhöld ættu að taka fjórar vikur en dagsetning hefur ekki verið ákveðin.
Høiby neitaði ávallt sök í alvarlegustu ákæruliðunum og sótti um áfrýjun á dómum sem kveðnir voru upp yfir honum fyrir nauðganir og brot í nánu sambandi. Áfrýjunardómstóll í Ósló tekur þessa ákærulið fyrir og endurmetur þá.
Í þeim nauðgunum sem hann var sakfelldur fyrir gátu konurnar ekki borið hönd fyrir höfuð sér sökum svefns eða ölvunar. Høiby var sýknaður af tveimur öðrum nauðgunarákærum.
Sturla Henriksbø saksóknari hefur áður sagt að ákæruvaldið telji ekki ástæðu fyrir áfrýjun. Hann hefur ekki tjáð sig um ákvörðun áfrýjunardómstólsins.