Maður var fluttur á slysadeild með hugsanlega skotáverka og annar var handtekinn í aðgerðum lögreglu á Kársnesi í Kópavogi í og upp úr hádeginu. Þetta staðfestir Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn á rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Grunur leikur á að annar maðurinn hafi skotið hinn í höndina.
Agnes segir að lögregla hafi fundið skotvopn á vettvangi en segir að ekki séð staðfest að það sé vopnið sem var beitt. Rannóknin er enn í fullum gangi.
Tveir viðmælendur fréttastofu sem búa á þessum slóðum segjast hafa heyrt skothvell. Annar segir að hann hafi álitið Ísland svo öruggan stað að hann áttaði sig ekki á því fyrr en lögregla kom að hvellurinn sem hann heyrði væri skothvellur.
Einn viðmælandi fréttastofu segir að mikið partístand hafi verið í nótt í húsi þar sem einn var handtekinn síðdegis. Hann heyrði kallað á hjálp og heyrði hvell. Það var svo ekki fyrr en lögreglan mætti að hann setti hvellinn í samband við neyðarkallið og taldi þá að um skothvell væri að ræða.
Annar viðmælandi sagðist einnig hafa heyrt skothvell.
Blóð var á hurð að stigaganginum, sagði einn viðmælandi lögreglu.
Vísir greindi frá því síðdegis að maður hefði gengið blóðugur inn í bakaríið Brikk við Hafnarbraut og sagt að hann hefði verið skotinn í höndina. Hann var þá með handklæði vafið um höndina.
Lögregla sendi fjölmennt lið lögreglumanna á staðinn, minnst fjóra bíla almennu lögreglunnar og þrjá bíla sérsveitar ríkislögreglustjóra. Sérsveitin er iðulega kölluð til ef grunur er um vopnaburð.
Lögregla leiddi einn mann út úr húsinu í járnum. Sjá mátti lögreglu leita að einhverju í görðum í nágrenninu. Hún girti af svæði við einn stigaganginn með lögregluborða.