Héraðssaksóknari er með fleiri en eitt mál til meðferðar sem tengjast lögmanni sem sakaður er um misferli. Lögmaðurinn hefur verið kærður fyrir fjárdrátt úr dánarbúi konu sem hún var fjárhaldsmaður fyrir.
Heimildin greindi frá því í dag að lögmaðurinn Guðrún Björg Birgisdóttir væri talin hafa dregið að sér fé frá fleirum og þá talsvert hærri upphæðir. Hún hafi verið ráðsmaður, skipaður af sýslumanni, í málum þar sem fólk hefur verið svipt fjárræði sökum veikinda eða fötlunar.
Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari stafðestir í samtali við fréttastofu að mál lögmannsins séu á borði embættisins og lúti að fleiru en einu tilviki.
Guðrún hefur verið kærð fyrir að draga sér hátt í þrettán milljónir úr dánarbúi konu. Guðrún hafði verið skipaður fjárhaldsmaður hennar nokkrum mánuðim fyrir andlát hennar og fór fyrir skiptum dánarbúsins. Börn konunnar kærðu Guðrúnu.
Féð sem Guðrún á að hafa dregið að sér var geymt á fjárvörslureikningi lögmannsstofu hennar, Logia ehf. Stofan var úrskurðuð gjaldþrota í janúar. Lögmannsréttindi hennar voru felld niður að beiðni Lögmannafélags Íslands í ársbyrjun, þar sem hún hafði ekki skilað félaginu fjárvörsluskýrslu - þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir.