Starfsmönnum ríkisins sem starfa í heilbrigðisþjónustu fjölgaði um nærri 40% á árunum 2019 til 2025. Fjölgunin skýrir 72% af heildaraukningu meðal starfsmanna ríkisins á tímabilinu. Á þessu árabili fjölgaði stöðugildum hjá ríkinu um 16%.
„93% af fjölgun stöðugilda frá árinu 2019-2025 má rekja til starfa í heilbrigðisþjónustu, öryggisþjónustu og kennslu. Heilbrigðisþjónustan vegur langþyngst og skýrir ein og sér um 72% af heildaraukningunni,“ segir í minnisblaði sem var unnið í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og lagt fyrir á ríkisstjórnarfundi í gær.
Tilfærsla öldrunarþjónustu skýrir aukninguna að hluta
Þar segir að fjölgun starfa í heilbrigðisþjónustu eigi sér lýðfræðilegar skýringar.
Frá upphafi árs 2019 og til síðustu áramóta hafi íbúum landsins fjölgað um 12,8%. Fjölgun þeirra sem eru 60 ára og eldri nam 22% á tímabilinu. Einn aldurshópur sker sig úr með tilliti til fjölgunar, það er hópur þeirra sem eru á bilinu 70 til 79 ára. Þeim fjölgaði um 35%. Til samanburðar fjölgaði þeim sem eru undir 30 ára um 16%.
Fjölgun ríkisstarfsmanna sem starfa í heilbrigðisþjónustu má að hluta rekja til þess að verkefni tengd öldrunarþjónustu hafa á undanförnum árum færst frá sveitarfélögum til ríkisins, að því er segir í minnisblaðinu. Þeim fjö Þá hafi framboð á launuðum námsstöðum í heilbrigðisþjónustu aukist, til dæmis vegna sérnáms í heimilislækningum.
Stytting vinnuvikunnar hafði áhrif
Í minnisblaði ráðuneytisins kemur fram að starfsmönnum ríkisins hafi fjölgað mest á árunum 2021 til 2022, á tímum heimsfaraldursins. Á sama tímabili stóð yfir innleiðing á styttingu vinnuvikunnar úr 40 vinnustundum í 36. Breytingin hafi kallað á aukna mönnun í vaktavinnu.
Á milli áranna 2019 og 2025 fjölgaði stöðugildum í vaktavinnu um 28%, samanborið við 13% aukningu meðal dagvinnufólks.