Fjárfestar sem keyptu hlutabréf Heiðars Guðjónssonar í Sýn 2022 hafa stefnt honum fyrir rétt. Þeir telja að hann hafi búið yfir innherjaupplýsingum og haldið eftir upplýsingum um stöðuna við söluna.
Morgunblaðið greindi frá þessum málaferlum í dag. Við opnun markaða tilkynnti Sýn svo um að fyrirtækið hefði upplýst Fjármálaeftirlit Seðlabankans um það sem virtust vera brestir í upplýsingagjöf innan fyrirtækisins um það leyti sem Heiðar seldi hlutabréfin sín.
Heiðar var forstjóri Sýnar. Hann er nú stjórnarformaður Íslandsbanka. Félag hans Úrsus seldi félaginu Gavia Invest hlutabréf fyrir 2,2 milljarða í júlí 2022.
Í frétt Morgunblaðsins er haft eftir Einari Huga Bjarnasyni, lögmanni Gavia Invest, að Heiðari hafi mátt vera ljóst að verulegt tekjufall væri fram undan hjá félaginu. Einar Hugi er formaður Fjölmiðlanefndar.
Sýn greindi frá því í tilkynningu til Kauphallarinnar í morgun að yfirferð stjórnar og stjórnenda á eldri rekstrargögnum hefði leitt til „frekari skoðunar á því hvort meðferð upplýsinga um uppfærða innri rekstrarspá félagsins á árinu 2022 hefði verið í samræmi við gildandi reglur“. Þetta gerðist í tengslum við áætlanagerð fyrir þetta ár.
Stjórnin ákvað í framhaldi af þessu að upplýsa Fjármálaeftirlitið um málið og afhenda því viðeigandi gögn. Svo virtist sem uppfærðri innri rekstrarspá um þróun Iot-tekna hefði ekki verið miðlað innan félagsins í samræmi við verkferla.
„Um svipað leyti áttu sér stað hlutabréfaviðskipti af hálfu félags í eigu þáverandi forstjóra félagsins. Sýn tekur ekki afstöðu til þess hvort um brot á lögum eða reglum hafi verið að ræða og hefur ekki fengið neina afstöðu Fjármálaeftirlitsins þar að lútandi.“