Hátt vaxtastig og mikil opinber gjaldtaka hefur einna mest áhrif á stöðu á byggingamarkaði, að mati formanns Samtaka iðaðarins. Fulltrúar úr samtökum í byggingariðnaði hafa lýst yfir áhyggjum af atvinnumöguleikum vegna kólnunar á markaði.
Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins, segir að hægt hafi talsvert á byggingamarkaði. Samdráttur á húsnæðismarkaði sé áhyggjuefni sem samtökin hafi orðið vör við í auknum mæli síðustu vikur og mánuði.
„Ég held að stærsta áhyggjuefnið sé auðvitað hversu hátt vaxtastigið er sem er farið að bíta verulega á fasteignamarkaði og er að hafa þá áhrif til nokkurrar sölutregðu á fasteignamarkaði og er að stuðla að því hversu hratt er að hægjast á núna í nýrri uppbyggingu,“ segir Þorsteinn.
Hann segir mikilvægt að samstaða náist meðal fulltrúa vinnumarkaðarins um hvernig hægt sé að ná niður verðbólgu á komandi mánuðum og skapa svigrúm fyrir Seðlabankann til að lækka vexti. Þá gegni umræða um nýja þjóðarsátt og nýja endurskoðun kjarasamninga lykilhlutverki.
„Ef að okkur tekst vel þar upp ætti staðan á þessum markaði að geta batnað nokkuð hratt, en ef við lendum í einhvers konar verðbólguspíral hér inn á næsta ár að þá gætum við verið í talsverðum vanda.“
Lykilverkefni að ná vaxtastigi niður
Þorsteinn segir verðbólguna hafa áhrif í öllum greinum byggingaiðnaðarins. Þrátt fyrir að óseldar íbúðir á markaði hafi ekki verið fleiri frá því rétt fyrir hrun segir hann aðstæður breyttar og kólnunina því líklega tímabundna.
Þvert á móti standi hagkerfið vel en lykilverkefni verði að ná vaxtastigi niður til að örva eftirspurn að nýju. Að sama skapi sé mikilvægt að sveitarfélög endurskoði þá gjaldtöku sem aukin hafi verið á íbúðarhúsnæði á undanförnum árum.
„Það er mjög íþyngjandi fyrir íbúðaruppbyggingu við núverandi skilyrði þegar að bæði er verið að auka gjaldtökuna af hálfu sveitarfélaganna og að fella niður eða draga verulega úr niðurgreiðslu virðisaukaskatts vegna íbúðarhúsnæðis sem hefur tíðkast hér um árabil. Versti mögulegi tíminn til að grípa til slíkra ráðstafana er núna.“