Háskólinn í Reykjavík og Háskóli Íslands hafa sameinast um að senda starfsmann til Brussel, til að fylgjast með og taka þátt í stefnumótun Evrópusambandsins hvað varðar rannsóknaráætlanir og styrkjakerfi sem menntastofnunum stendur til boða að sækja fjármagn í.
Hulda Proppé, sem verið hefur rannsóknarstjóri á félagsvísindasviði HÍ, verður fulltrúi skólanna í Brussel, og hefur verið ráðin til tveggja ára í upphafi.
Gert er ráð fyrir að hún hefji störf í byrjun nóvember, en skrifstofa hennar verður í Nordic House byggingunni í Evrópuhverfinu í Brussel, þar sem fjölmargar aðrar norrænar menntastofnanir og opinber samtök eru með aðstöðu.
„Við erum í upphafi að hugsa þetta til tveggja ára, en vonumst auðvitað til að framhald verði á, og að aðrir íslenskir háskólar taki þátt í þessu verkefni,“ segir Silja Bára Ómarsdóttir rektor HÍ.
„Langflestir norrænir háskólar eru nú þegar með viðveru í Brussel, og við teljum mikilvægt að slást í þennan hóp og vera þar sem stefnumótun í mikilvægum hagmunamálum okkar á sér stað.“
Skólarnir tveir fengu 40 milljóna króna styrk í þetta verkefni frá Menningar- nýsköpunar og háskólaráðuneytinu í desember 2024, en ekki er ljóst hver endanlegur kostnaður við það verður.