Hásetar og bátsmenn í Sjómannafélagi Íslands hófu í hádeginu ótímabundið verkfall á þremur skipum Eimskips.
Þetta staðfestir Bergur Þorkelsson, formaður Sjómannafélagsins, í samtali við mbl.is.
Verkfallið tekur til skipanna Brúarfoss, Dettifoss og Selfoss en Eimskip segist í tilkynningu hafa unnið markvisst að því lágmarka truflanir á þjónustu við viðskiptavini sína vegna verkfallsins.
Hætti að ráða útlendinga frá fátækum löndum
Segir Bergur nokkra fundi hafa átt sér stað á síðastliðnum dögum, meðal annars hjá ríkissáttasemjara, á milli Sjómannafélagsins, Eimskips og Samtaka atvinnulífsins.
Formaðurinn segir erfitt að segja til um það hvort stutt sé í að samkomulag náist á milli aðila. Ekki hefur verið boðaður annar fundur hjá ríkissáttasemjara að svo stöddu.
Kjaradeilan snýst að sögn Bergs ekki um launalið kjarasamninganna, deilan snúist aðallega um mönnun skipanna.
„Þetta snýst um að Eimskip hætti að segja Íslendingum upp og ráða þeirra í stað útlendinga frá fátækum löndum sem eru á fimm sinnum lægri launum,“ segir Bergur sem telur Eimskip ekki hafa tekið tillit til þessara sjónarmiða enn sem komið er.