Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Friðarráðið hafi náð sögulegu samkomulagi við Hamas samtökin og aðra vopnaða hópa á Gaza um afvopnun samtakanna.
Fréttaveita AFP segir að Hamas hafi staðfest að samkomulag hafi náðst, en stjórnvöld í Ísrael hafa ekki enn sent frá sér yfirlýsingu.
Bandaríkjaforseti sagði í færslu á Truth Social í kvöld að samkomulagið markaði tímamót. Hersveitir Ísraela munu fara frá Gaza þegar búið er að afvopna Hamas. Alþjóðleg öryggissveit tekur síðan við og sér um öruggismál í samvinnu við ný palestínsk lögregluyfirvöld.
Trump þakkaði Egyptalandi, Katar og Tyrklandi fyrir framlag sitt til að miðla málum og ná samkomulaginu. Hann sagði að ógn eins og þeirri sem varð til á Gaza 7. október verði ekki leyft að byggjast upp á ný.
Bandaríkjaforseti bætti svo við í færslu sinni að samkvæmt þessu samkomulagi yrði Gaza undir stjórn nýrrar palestínskrar ríkisstjórnar sem þjónaði þjóð sinni.
Yfirvöld í Egyptalandi ætla að halda samningafund með samninganefndum frá Bandaríkjunum, Katar og Tyrklandi innan tíðar til að ræða næstu skref í samkomulaginu fyrir Gaza.
Fréttaveita AFP hefur eftir háttsettum Hamas-liða að Friðarráðið ætli að stofna sérstaka nefnd palestínskra sérfræðinga sem komi til með að sjá um skráningu og geymslu allra vopna samtakanna í samræmi við þann tímaramma sem samkomulagið nær yfir. Aðeins þessi nefnd fær að halda, geyma og hafa umsjón með vopnum á Gaza.