Hákarl réðst á brimbrettakappa á sextugsaldri í sjónum nærri Glenfield-strönd í vestur Ástralíu í gær. Maðurinn var fluttur í skyndi á spítala eftir árásina. Hann er alvarlega slasaður en líðan hans er sögð stöðug.
Yfirvöld hafa ráðlagt íbúum að halda sig frá sjónum. Ástralskir vísindamenn telja að fjölgun hákarlaárása megi rekja til þess að fólki hefur fjölgað sem fer í sjóinn og vegna hækkunar sjávarhita sem sé að hafa áhrif á árstíðarbundnar ferðir hákarla.
Alls hafa orðið yfir 1.300 hákarlaárásir við strendur Ástralíu síðan 1791. Yfir 260 hafa verið drepnir af hákörlum í þessum árásum, samkvæmt gagnagrunni um árásir hákarla.