Formaður SÁÁ vísar ásökunum starfsfólks um að stjórn félagsins hafi afskipti af faglegu starfi á bug. Framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ hefur sagt upp störfum af þessum ástæðum eftir að forstjóri lét af störfum í síðasta mánuði.
„Stjórn SÁÁ ber ábyrgð á stjórnun og stefnumótun samtakanna en faglegar ákvarðanir í meðferð og heilbrigðisþjónustu eru ávallt teknar af fagfólki innan þeirra laga og rekstrarramma sem gildir um starfsemina,“ segir Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ.
„En við höfum auðvitað eftirlit með starfseminni og okkur ber náttúrulega að bara samkvæmt lögum að hafa eftirlit, þannig að ég er ekki samþykkt í því sem þær segja,“ segir Anna Hildur.
Fréttastofa ræddi við Valgerði Rúnarsdóttur, framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ, sem hefur sagt starfi sínu lausu. Hún sakar stjórn félagsins um afskipti af faglegu starfi og segir forstjórann, Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, hafa látið af störfum í allra óþökk nema stjórnarinnar.
Spurð hvort SÁÁ gæti haldið uppi gæðum heilbrigðisþjónustu þegar forstjóri og framkvæmdastjóri lækninga væru hætt segir Anna Hildur:
„Já, við teljum að svo sé og það er okkar keppikefli að halda uppi öryggi og samfellu í allri heilbrigðisþjónustunni og við bara að því og og teljum að svo sé.“
Valgerður lýsti því í viðtali við fréttastofu í gær að hún myndi íhuga að draga uppsögn sína til baka ef stjórnin tæki skref til baka.
„Við teljum að fyrrverandi forstjóri hafi, þar sem hún sagði upp störfum, hún óskaði eftir starfslokasamningi, þá getum við ekki breytt þeirri ákvörðun,“ segir Anna Hildur.
Fréttastofa hefur ekki náð tali af Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, fyrrverandi forstjóra, um aðdraganda starfsloka hennar.