Pattstaðan í sænskum stjórnmálum hefur verið algjör í kjölfar kosninganna þann 12. september síðastliðinn. Þrátt fyrir að vinstriblokkin, sem var í stjórnarandstöðu síðustu fjögur ár, hafi náð meirihluta þá hefur ekkert gengið að mynda ríkisstjórn.
Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar í dag um Elisabeth Thand Ringqvist sem forsætisráðherra voru afgerandi en 324 þingmenn sögðu nei og 25 þingmenn já. Er þetta í annað sinn sem tillaga um forsætisráðherra er borin fram í þinginu en alls getur þingforseti borið fram fjórar slíkar tillögur en verði þær allar felldar skal boða til nýrra kosninga.
Amanda Lind
Talsmaður Græningja.
Daniel Helldén
Talsmaður Græningja.
Ebba Busch
Formaður Kristilegra demókrata og orku- og iðnaðarráðherra.
Elisabeth Thand Ringqvist
Formaður Miðflokksins.
Jimmie Åkesson
Formaður Svíþjóðardemókrata.
Magdalena Andersson
Formaður Sósíaldemókrata.
Nooshi Dadgostar
Formaður Vinstriflokksins.
Simona Mohamsson
Formaður Frjálslynda flokksins og menntamálaráðherra.
Ulf Kristersson
Formaður Moderaterna og forsætisráðherra.
Magdalena Andersson formaður Jafnaðarmannaflokksins, sem er stærsti flokkurinn á sænska þinginu, fékk stjórnarmyndunarumboðið upphaflega þegar úrslit kosninganna voru ljós. Skilaði hún því þó fljótlega aftur þegar lítið hafði gengið í viðræðum. Forseti þingsins ákvað hins vegar að hún skyldi reyna áfram og var lögð fram tillaga um Andersson sem forsætisráðherra þann 15. október.
Var sú tillaga felld en vandræði Andersson, sem allir fjórir vinstri flokkarnir hafa stillt upp sem sínum forsætisráðherrakandídat, snúast að því að Miðflokkurinn vill ekki sitja í stjórn með Vinstriflokknum. Til að vinstri blokkin geti myndað ríkisstjórn þyrfti Miðflokkurinn að bakka frá þessari kröfu sinni eða Vinstriflokkurinn aðeins vera stuðningsflokkur ríkisstjórnarinnar, án þess að fá ráðherrastóla.
Það eru forystumenn Vinstriflokksins ekki tilbúnir að samþykkja og staðan því snúin.
Umboðið færist til Kristersson
Eftir að Andersson var hafnað ákvað þingforsetinn Anders Norlén að veita Elisabeth Thand Ringqvist stjórnarmyndunarumboðið en Miðflokkurinn er hluti af vinstri blokkinni.
Ætlaði Ringqvist að freista þess að mynda miðjustjórn og fá forystumenn Frjálslyndra og Kristilegra demókrata úr hægriblokkinni til að hoppa í eina sæng með Miðflokknum, Græningjum og Jafnaðarmönnum. Vinstriflokkurinn yrði þá utan stjórnar.
Fljótlega varð þó ljóst að myndun slíkrar stjórnar var vonlaust verkefni. Kom það því töluvert á óvart þegar Norlén þingforseti ákvað engu að síður að bera fram tillögu um Ringqvist sem forsætisráðherra í fimm flokka stjórn, sérstaklega þar sem Ringqvist virtist lítinn áhuga hafa á því sjálf að stýra slíkri stjórn.
Hefur Norlén sagt að hann vilji að stjórnarmyndunarviðræður séu leiddar til lykta með atkvæðagreiðslu í þinginu og með því vilji hann setja pressu á þingmenn því möguleikunum fækki með hverri kosningu.
Niðurstöður þingkosninga þegar 100% atkvæða hafa verið talin
Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði í viðtali við fjölmiðla í gær að þörfin fyrir öryggistryggingu fyrir Úkraínu og Evrópu væri umræðuef...
Minnst tvær konur og þrjú börn létust þegar sandbakki hrundi á tjöld suður af Deir al-Balah á Mið-Gaza í dag. Sandbakkinn féll eftir miklar rigningar ...
Gert er ráð fyrir að framkvæmdirnar á Miklubraut í Reykjavík standi yfir frá klukkan 14 til 17 og verður rampurinn frá Miklubraut að Réttarholtsvegi l...
Friedrich Merz kanslari Þýskalands tilkynnti í gær að hann ætli sér að tilnefna stjórnmálakonuna Ilse Aigner næsta forseta Þýskalands á næsta ári. Aig...
Malbiksviðgerðir verða á gatnamótum Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar og á rampi frá Miklubraut að Réttarholtsvegi á morgun, mánudag ef veður ley...
Eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti fundaði með Kirill Dmitriev, erindreka Pútíns, í Hvíta húsinu á fimmtudaginn síðastliðinn boðaði hann „stórt o...
Jensen Huang, forstjóri Nvidia, hefur viðurkennt að hafa haldið framhjá eiginkonu sinni til fjörutíu ára með konu sem bandaríska leyniþjónustan telur ...
Vegagerðin varar við hálku í fyrramálið, einkum um norðanvert landið en einnig suðvestantil.Í veðurspá frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar sem send var ...
Um helgina fór fram flokksráðsfundur Vinstri grænna þar sem samþykktar voru ályktanir flokksins. Í þeim segir meðal annars að flokksráðið gagnrýni fyr...
Að minnsta kosti 34 manns drukknuðu eftir að lítill flatbotna trébátur með farandfólk innanborðs sökk undan norðvesturströndum Senegals, um 180 kílóme...
Veðurfræðingur Vegagerðarinnar bendir vegfarendum á að í kvöld sé veður milt, úrkomusamt og með hægri vestlægri átt. Í nótt verður áfram hægur vindur ...
En nú okkur sjálf! Allt í einu er til dæmis kominn nóvember. Hvernig gerðist það? Var árið ekki bara rétt að byrja? Og hvers vegna er alltaf föstuda...
„Allt tekur enda um síðir,“ skrifar Jama á Instagram er hún tilkynnti brottför sína af ástareyjunni. Hún þakkar aðdáendum sínum innilega og segir þætt...
Silfrastaðakirkja var byggð árið 1896, fyrir hundrað og þrjátíu árum, og var friðuð árið 1990. Kirkjan er merkileg fyrir margar sakir og stendur Skagf...
Vogur leitar leiða, í samráði við Landspítala, til að manna starfsemina svo hægt sé að taka á móti fleirum í meðferð. Álag hefur aukist á fíknigeðdeil...
Huppa var fædd 3. nóvember 1926 og haldið var upp á afmælið með fjölmörgum erindum og umræðum í félagsheimilinu á afmælisdeginum sjálfum.Huppa var bra...
Mótmælendur komu saman við rússneska sendiráðið í Dóminíska lýðveldinu á dögunum til að krefjast þess að landar þeirra fái að snúa heim af víglínunni ...
Björgunarsveitin Elliði greinir frá því í færslu á Facebook að aðstæður útkallsins hafi verið hættulegar björgunarsveitarmönnum en Kleifá sé óvenju va...
Er þetta meðal þess sem kom fram í stjórnmálaályktun Framsóknar en miðstjórnarfundur flokksins fór fram á Laugarbakka um helgina. Þá segir í ályktunin...
Og nei, þetta eru ekki einhverjir sérvitringar sem búa í kynlífskjallara með rauðum flauelstjöldum og speglum í loftinu. Þetta er ósköp venjulegt fólk...
Mikið tómahljóð var á miðflokksfundi Framsóknar sem haldinn var um helgina á Laugarbakka. Lilja Alfreðsdóttir, formaður flokksins og fyrrum þingmaður,...
Flokksráðsfundur VG fordæmir hatursorðræðu og hvers kyns niðurlægingu, mismunun eða ógnir sem beinast gegn fólki meðal annars vegna uppruna, hörundsli...
Er þetta meðal þeirra mála sem koma fram í yfirliti lögreglu frá deginum í dag. Þá bárust lögreglu þrjár tilkynningar um ósætti milli fjölskyldumeðli...
Lúðvík Bergvinsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi og hæstaréttarlögmaður, segir forsetann fyrrverandi vera mann stórra yfirl...
Hátt í þrisvar sinnum fleiri greinast hlutfallslega með lekanda hér á landi en í öðrum Evrópulöndum. Sóttvarnalæknir segir mikilvægt að fólk greinist ...
John-Michael Dooley, ungur faðir frá Suður Karólínu fylki, hefur verið handtekinn eftir að hafa skilið sex ára dóttur sína úti um miðja nótt. Lét hann...
Ólafur Sveinsson, kvikmyndagerðarmaður, segir að RÚV hafi hafnað því að sýna heimildarmynd hans um Ómar Ragnarsson og gefur lítið fyrir svör um pening...
Miðstjórnarfundur Framsóknarflokks var haldinn á Laugarbakka í Miðfirði um helgina.Í ályktun fundarins kemur fram að ófaglegum vinnubrögðum barna- og ...
Trump heitir endurkomu: „Þeir geta elt okkur uppi“ Trump var tvisvar kærður til embættismissis á fyrra forsetatímabili sínu. Nú geta demókratar ...
Farþegar bílsins sem endaði í Kleifá í morgun eru erlendir ferðamenn. Ekki er vitað um líðan þeirra. Jónas Hallgrímur Ottósson, yfirlögregluþjónn Lögr...
Söfnun er hafin fyrir málskostnaði Pálínu Helgu Þórarinsdóttur eftir að Landsréttur dæmdi ummæli hennar um Ingólf Þórarinsson tónlistarmann, Ingó veðu...
Fjölmiðlar sem eru tengdir Hútum segja 33, hið minnsta, hafa verið drepna í loftárásum Sádi-Araba í Jemen í dag.Meðal látinna eru konur og börn.Hátt í...
Sigurjón greinir frá þessu í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum. Hann segir að fyrir nokkrum vikum hafi hann fengið verk í síðuna. Við skoðun hafi strax or...
Þetta segir Jónas Hallgrímur Ottósson í samtali við fréttastofu en aðgerðum á slysstað er nýlokið. Jónas gat ekki sagt til um ástand farþeganna í bíln...
It is yet unclear what caused the accident but Egyptian President Abdel Fattah al-Sisi said an investigation is underway and will "hold accountable an...
Hjónin hafa komið á fót verkefninu Bíladegi Birtu Maríu, sem nýverið hlaut 700 þúsund króna styrk úr Góðgerðarfesti Blue. Með framtakinu vilja þau vek...
Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar: Einn kennaranna á ljósmynd Síðuskóla sem birt var til stuðnings transhugmyndafræði er, eins og greinarhöfundur, sjúk...
Minnst fjórir eru látnir og talið að um 88 hafi slasast þegar tvær lestar skullu nærri borginni Giza í Egyptalandi.Yfirvöld segja að lest sem var á le...
Minnst sjö eru látnir og yfir 100 slasaðir eftir að tvær lestar skullu nærri borginni Giza í Egyptalandi.Yfirvöld segja að lest sem var á leið frá Giz...
Í umfjöllun AP-fréttastofunnar kemur fram að lest í Fayoum héraði hafi rekist aftan á aðra lest með þeim afleiðingum að önnur lestin fór út af sporinu...
Starfsmannamál Hvíta hússins hafa verið tilefni margra frétta undanfarið.Í gær bárust fréttir af því að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði boðið Dan...