Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Miðflokksins hefur lagt fram nýja tillögu til borgarráðs að hætt verði við smíði Fossvogsbrúar. Tillagan var rædd fundi borgarráðs í morgun, 30. apríl. Jafnframt er lagt til að strætisvagnatengingu verði komið á milli Nauthólsvíkur (Háskólans í Reykjavík) og Kópavogs með öðrum hætti.
Tillagan er svohljóðandi:
30. apríl 2026: Tillaga um að hætt verði við smíði Fossvogsbrúar
Lagt er til að teknar verði upp viðræður við ríkisvaldið og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu um að hætt verði við smíði Fossvogsbrúar. Þess í stað fari það fé, sem ætlað hefur verið í brúarsmíðina, í aðrar samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu. Þá verði strætisvagnatengingar milli Reykjavíkur og Kópavogs bættar með því að vestari hluti Vesturhlíða verði lagfærður og gerður að svokallaðri strætógötu, þar sem einungis yrði heimilaður akstur strætisvagna og neyðarbifreiða.
Greinargerð
Áformað er að Fossvogsbrú verði 270 metra löng stálbrú, sem tengi saman tvö jaðarsvæði: Kársnes og Nauthólsvík. Brúin mun hafa mjög takmarkaðan almennan tilgang. Ekki er gert ráð fyrir bílum á brúnni heldur einungis gangandi og hjólandi umferð, auk borgarlínuvagna. Brúin mun hafa lítil áhrif til styttingar fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, fyrir utan þá sem eru einungis á ferð milli þessara jaðarsvæða.
Flest bendir til þess að Fossvogsbrú verði óarðbær og hafi neikvætt núvirði eins og borgarlínuverkefnið í heild sinni. Þá skýtur skökku við að svo dýr nýframkvæmd sem þessi sé sett í forgang þegar ljóst er að margar aðrar samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu yrðu mun arðsamari og þarfari.
Kostnaður við Fossvogsbrú var lengi vel hulinn þoku og voru kostnaðaráætlanir stórlega vanmetnar. Áætlaður heildarkostnaður við mannvirkið hefur margfaldast frá upphaflegri áætlun og nú er ljóst að hann verður varla undir ellefu milljörðum króna. Vegna stökkbreyttra kostnaðaráætlana Fossvogsbrúar en takmarkaðs ávinnings, ætti að hætta við verkefnið í heild sinni.
Bættar strætisvagnatengingar milli Nauthólsvíkur (Háskólans í Reykjavík) og Kársness hafa verið ein helsta röksemdin fyrir Fossvogsbrú. Ljóst er að hægt er að bæta þessar tengingar með miklu minni tilkostnaði en fyrirhuguð Fossvogsbrú hefði í för með sér. Er því lagt til að strætisvagnatengingar milli Reykjavíkur og Kópavogs verði bættar með því að vestari hluti Vesturhlíðar (lokaður vegarkafli í sunnanverðri Öskjuhlíð) verði lagfærður og gerður að svokallaðri strætógötu, þar sem einungis yrði heimilaður akstur strætisvagna og neyðarbifreiða. Strætógatan myndi síðan tengjast eystri hluta Vesturhlíðar og Suðurhlíð. Með slíkri aðgerð væri unnt að bæta strætisvagnatengingar við Háskólann í Reykjavík og aðra starfsemi í Nauthólsvík verulega, ekki síst í þágu íbúa Kópavogs og annarra nágrannasveitarfélaga.