Það er hæglætisveður víðast hvar á landinu þessa dagana, víða með dálítilli vætu. Á morgun bætir aðeins í vind á landinu norðanverðu, en hiti fer í allt að 17 stig á Suðurlandi á morgun. Víkjum að hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:
Í dag er útlit fyrir hæga norðaustlæga eða breytilega átt. Skýjað að mestu á landinu og víða skúrir, en þokuloft lætur líklega á sér kræla með norður- og austurströndinni. Hiti 8 til 15 stig.
Á morgun er spáð norðan 3-10 m/s á norðanverðu landinu með dálítilli súld
eða rigningu og hita 6 til 11 stig. Hæg breytileg átt sunnantil og einhver göt í skýjahulunni þar, en líkur eru á skúrum síðdegis. Hiti að 16-17 stigum á Suðurlandi þar sem best lætur.
Á föstudag er síðan útlit fyrir fremur hæga suðlæga átt með vætu, en þurrt að mestu norðanlands þangað til síðdegis. Hiti á svipuðu róli áfram, eða 8 til 15 stig.