Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands að hæð þessi sjái um að dæla til okkar röku og hlýju lofti sem á rætur sínar langt suður í hafi. Þó er tekið fram að heldur bæti í vind á morgun og hinn.
Veðurhorfur næstu daga:
Á sunnudag:
Vestlæg átt, 5-13 m/s. Dálítil rigning eða þokusúld með köflum, en bjart að mestu austantil. Hiti 11 til 24 stig, hlýjast austanlands.
Á mánudag:
Vestan og suðvestan 5-13 m/s. Súld eða rigning með köflum, en þurrt að kalla suðaustantil. Hiti breytist lítið.
Á þriðjudag:
Vestan og suðvestan 5-13 m/s, dálítil rigning eða súld vestanlands, en bjart með köflum fyrir austan. Hiti víða 11 til 20 stig, hlýjast austanlands.
Á miðvikudag:
Ákveðin suðvestanátt með rigningu eða súld, dálítil rigning af og til norðaustantil, en þurrt að kalla suðaustanlands. Hiti 11 til 22 stig, hlýjast austanlands.
Á fimmtudag:
Vestlæga átt og súld af og til, en bjart fyrir austan. Áfram milt.
Á föstudag:
Útlit fyrir norðanátt með dálítilli vætu á Norður- og Austurlandi, en björtu sunnan- og vestanlands. Kólnandi fyrir norðan, en fremur hlýtt syðra.