Dómsmálaráðherra segir engar breytingar sem lúta að netsölu með áfengi vera í skoðun hjá ríkisstjórninni. Ef niðurstaða Landsréttar staðfesti það að netsalan sé ólögleg vænti hún þess að lögreglan bregðist við.
Nýr bæjarstjóri Grindavíkur lítur ekki svo á að farið sé gegn tilmælum Grindavíkurnefndarinnar með því að hefja skólastarf að nýju í bænum. Allt verði gert til að tryggja öryggi nemenda og starfsmanna og að miklar vendingar séu framundan í málefnum bæjarins.
Lögreglumenn á varðsvæði lögreglustöðvar eitt hafa fengið tugi tilkynninga um innbrot frá mánaðamótum. Lögreglan telur verknaðinn ekki vera skipulagða glæpastarfsemi heldur tilviljunarkennd innbrot á heimili og í fyrirtæki.