Veðurstofan hefur gefið út gular veðurviðvaranir á Suðausturlandi og Austfjörðum vegna norðvestan hvassviðris.
Spáð er 13 til 20 metrum á sekúndu í landshlutunum. Vindhviður gætu sums staðar farið yfir 30 metra á sekúndu.
Á Suðausturlandi tekur viðvörun gildi klukkan 3 í nótt en klukkan 4 á Austfjörðum. Þær gilda báðar fram til klukkan 11 fyrir hádegi.