Séra Guðni Már Harðarson hefur verið prestur í Lindakirkju í 18 ár og verið afar vinsæll í starfinu þar. Hann yfirgefur söfnuð sinn fljótlega, að minnsta kosti tímabundið, og segir söknuð fylgja þessum tímamótum.
„Ég sótti um stöðu sendiráðsprests Íslendinga í Kaupmannahöfn og var valinn. Við fjölskyldan erum að fara þangað. Okkur fannst stórt stökk að taka þessa ákvörðun en þetta er of spennandi til að gera þetta ekki,“ segir Guðni Már í viðtali í Síðdegisútvarpinu á Rás 2, en hann verður einnig prestur íslenska safnaðarins í Danmörku.
Eiginkona hans, Ásdís Björnsdóttir enskukennari og yngsta barnið 12 ára flytja með út. Elsta barnið er í háskóla og miðjubarnið á eitt ár eftir í Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Guðni Már hefur verið afar farsæll og vinsæll í starfinu í Lindakirkju og hefur alveg fengið að heyra það að hans verði saknað.
„Það hringdi ein kona og sagði: „Ég trúi þessu ekki, þú áttir að jarða mig!““ segir Guðni Már og hlær.
Guðni Már segist hafa bent henni á að hann kæmi til baka eftir þrjú ár, ef plön ganga eftir. „Þá sagði ég: „Þú verður að lifa í þrjú ár í viðbót.“ Við erum að hugsa þetta þannig að vera í þrjú ár, ég er ekki ráðinn til sérstaks tíma en við hugsuðum að það væri kannski heppilegur tími.“
„Við höfum verið mjög farsæl og það er gott að vera þar, allir vinna saman,“ segir hann um starfið í Lindakirkju. „Maður hefur verið með fólki í alls konar aðstæðum og myndað tengsl á síðustu 18 árum. Það er dálítið erfitt að klippa á þau.“
Guðni Már bjó á heimili föðursystur sinnar í Svíþjóð þegar hann tók ákvörðun um að verða prestur.
„Maðurinn hennar er prestur og ég ákvað þetta þegar ég var í tíunda bekk og bjó á heimili sjúkrahúsprests í Svíþjóð. Ég fékk þá tækifæri til að fara að læra nýtt tungumál og ekkert þroskaði mann jafn hratt,“ segir hann. „Maður er alltaf að hugsa að það er dýrmætt fyrir mann sjálfan að prófa að gera eitthvað nýtt.“
Telur hann að fjölskyldan öll muni verða reynslunni ríkari eftir dvölina í Kaupmannahöfn. Söfnuðurinn þar er fjórði stærsti söfnuður landsmanna, um 13 þúsund Íslendingar, á eftir höfuðborgarsvæðinu, Eyjafjarðarsvæðinu og Reykjanesinu.
Hlusta má á viðtalið við Guðna í heild sinni hér.