Gjábakkahellir á Þingvöllum hefur lokast að hluta vegna grjóthruns. Hellirinn var áður opinn í báða enda en nú er einungis hægt að komast inn öðrum megin. Leiðsögumenn uppgötvuðu grjóthrunið í vikunni en ekki liggur fyrir hvenær það varð eða hvers vegna.
Hellirinn nýtur vaxandi vinsælda, ekki síst meðal erlendra ferðamanna, sem gera sér það að leik að ganga í gegnum hellinn og koma upp hinum megin. Nú virðist sem það sé ekki lengur hægt.
Til tals hefur komið að fela utanaðkomandi rekstur og aðgengi að hellinum. Einar Á. Sæmundsen þjóðgarðsvörður segir það útboðsmál.
„Nú er þessi staður svolítið fjarri öllum formlegum innviðum, það er erfitt að komast að honum, en um leið er heldur ekkert rafmagn eða nokkur aðstaða til að byggja eitthvað fast upp,“ segir Einar.