Tveir menn voru vistaðir í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar á umfangsmiklum þjófnaði í matvöruverslunum.
Mennirnir eru skilríkjalausir að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, og þarfnast málið frekari rannsóknar.
Alls fékkst lögregla við 66 mál á tímabilinu klukkan 5.00-17.00 í dag og hafði í nógu að snúast, en henni bárust meðal annars tilkynningar um innbrot í fyrirtæki og líkamsárás á veitingastað, ásamt því sem hún þurfti að bregðast við afdrifamiklum fíkniefnaakstri.