Grindavík Ultra, utanvegahlaup sem Ungmennafélag Grindavíkur (UMFG) hafði fyrirhugað að halda um næstu helgi, hefur verið aflýst.
Ungmennafélag Grindavíkur, UMFG, tilkynnti þetta í gær eftir að ljóst varð að ekki yrði hægt að uppfylla þær forsendur sem þurfti til að halda hlaupið.
Unnið í nánu samstarfi við viðbragðsaðila
Mikil vinna var lögð í undirbúning hlaupsins undanfarna mánuði. Aðstandendur hlaupsins gerðu ráð fyrir að nauðsynleg leyfi og forsendur væru til staðar.
Steinar Atli Skarphéðinsson, verkefnastjóri hlaupsins, segir þetta gríðarleg vonbrigði. Unnið hafi verið í nánu samstarfi við viðbragðsaðila vegna framkvæmdarinnar, svo sem Slökkvilið Grindavíkur, Björgunarsveitina Þorbjörn og þau sem komu að hönnun varnargarðana í sveitarfélaginu.
Hann segir útsýnið á hlaupaleiðinni einstakt. Hlaupið átti að hefjast við íþróttamiðstöðina í Grindavík og þaðan tekinn hringur um Hópsnes og Fagradalsfjall. Því næst lægi leiðin upp á varnargarðana norðan við bæinn, áfram upp á Sýlingarfell og niður í Svartsengi, yfir Grindavíkurveg, í kringum Bláa lónið og yfir Þorbjörn.
Nú liggi hins vegar fyrir að ekki sé unnt að halda hlaupið á fyrirhuguðum tíma.
UMFG segir það mikil vonbrigði, enda hafi mikil vinna verið lögð í undirbúning hlaupsins. Það hafi jafnframt átt að vera fjáröflun fyrir félagið. UMFG segir þó að félagið hafi skilning á því að aðstæður geti breyst og að ákvarðanir séu stundum teknar sem það hafi ekki stjórn á.
Öll skráningar- og þátttökugjöld verða endurgreidd að fullu.
Vinna að því að hlaupið geti farið fram að ári
UMFG hyggst áfram vinna að því að Grindavík Ultra geti farið fram síðar og að hlaupið verði reglulegur viðburður í Grindavík. Félagið þakkar hlaupurum og öðrum sem komið hafa að undirbúningnum fyrir skilninginn.