84% atkvæða í sænsku þingkosningunum sem fóru fram í dag hafa verið talin og staðan gæti varla verið jafnari. Rauða blokkin leiðir enn með einum þingmanni, 175 gegn 174 þingmönnum bláu borgaralegu blokkarinnar.
Tölurnar eru í takt við spá sem sænska ríkisútvarpið SVT gaf út fyrr í kvöld.
Í ljósi þess hve mjótt er á munum má leiða líkur að því að úrslit muni ekki liggja fyrir í nótt, jafnvel ekki fyrr en í næstu viku þegar öll atkvæði hafa verið talin.
„Utankjörfundaratkvæði sem voru greidd seint og atkvæði frá útlöndum verða ekki fulltalin fyrr en á miðvikudag eða fimmtudag,“ hefur SVT eftir Lars Aden Lisinski, fjölmiðlafulltrúa hjá sænsku kosningastjórninni.
Bæði Ulf Kristersson, leiðtogi Moderaterna og forsætisráðherra Svíþjóðar, og Magdalena Andersson, leiðtogi Jafnaðarmanna, halda sig til hlés á kosningavökum flokka sinna og hafa enn hvorki tjáð sig um stöðuna né haldið ræður.
„Vinir, þetta er sögulegt“
Simona Mohamsson, leiðtogi Frjálslynda flokksins, var fyrst leiðtoga ríkisstjórnarsamstarfsins til að bregðast við nýjustu tölum. Samkvæmt þeim fær flokkurinn fimm prósent atkvæða og kemst inn á þing.
„Vinir, þetta er sögulegt. Söguleg endurkoma fyrir Frjálslynda flokkinn í Svíþjóð,“ sagði Mohamsson á kosningavökunni rétt í þessu. Hún vill halda áfram samstarfi við bláu blokkina.
Þingkosningunum í Svíþjóð lauk klukkan átta í kvöld á staðartíma þegar kjörstöðum var lokað.
Í kosningunum árið 2022 bar bláa blokkin nauman sigur úr býtum og Ulf Kristersson, leiðtogi Moderaterna, varð forsætisráðherra í minnihlutastjórn með Kristilegum demókrötum og Frjálslynda flokknum. Fyrir nokkrum vikum voru allar líkur á valdaskiptum í landinu eftir kosningarnar en staðan núna gæti varla verið jafnari.