Bransamiðillinn Variety greinir frá en Kevin Feige, forstjóri kvikmyndaversins Marvel Studios, tilkynnti þessi tíðindi á nördahátíðinni Comic Con í San Diego um helgina.
Leikstjóri myndarinnar verður Shawn Levy sem hefur áður gert Free Guy (2021) og Deadpool & Wolverine (2024), handritshöfundurinn Jonathan Tropper mun skrifa handritið og myndarinnar er að vænta árið 2028.
Levy og Gosling unnu nýverið saman að Stjörnustríðsmyndinn Star Wars: Starfighter sem verður frumsýnd 28. maí 2027 og sá fyrrnefndi vann nýverið með Marvel að Deadpool & Wolverine.
Gosling er annar leikarinn til að leika Skrattakollinn Johnny Blaze í leikinni kvikmynd því Nicolas Cage lék hann í kvikmyndunum Ghost Rider (2007) og Ghost Rider: Spirit of Vengeance (2011) sem fengu báðar arfaslaka dóma. Þá fór Gabriel Luna með hlutverk karaktersins í sjónvarpsþáttunum Agents of S.H.I.E.L.D. (2013-20).
Sjá einnig: Skrattakollur á mótorfáki
Í teiknimyndum er Johnny Blaze mótorhjólaknapi sem starfar við áhættuleik og selur djöflinum Mephisto sál sín í skiptum fyrir að hann lækni föður hans af krabbameini. Samningurinn er fástískur, faðirinn læknast af krabbameini en deyr svo í mótorshjólaslysi meðan sál sonarins binst yfirnáttúrulegum djöfli. Það gerir Blaze kleift að breyta sér í logandi beinagrindarknapa sem býr yfir ótrúlegum styrk og ýmsum öðrum kröftum.
Gosling hefur verið á ágætis róli síðustu ár, lék Ken í stórmyndinni Barbie fyrir þremur árum og sló í gegn sem geimfarinn Ryland Grace í geimmyndinni Project Hail Mary fyrr á þessu ári.