Ungverska lögreglan tilkynnti í morgun að ekki standi til að banna fyrirhugaða gleðigöngu í höfuðborginni Búdapest í júní. Viðburðurinn var bannaður í fyrra í tíð fyrri ríkisstjórnar Vikors Orban, þáverandi forsætisráðherra. Hann tapaði þingkosningum í vor. Eftirmaður hans, Peter Magyar, er íhaldsmaður og hlynntur Evrópusambandinu. Hann hefur lýst stuðningi við jafnrétti og fundafrelsi. Hann hefur þó ekki sérstaklega sagst styðja gleðigönguna eða gert sig líklegan til þess að snúa við fjölda laga sem samþykkt voru í tíð Orbans og takmörkuðu réttindi hinsegin fólks.
Skipuleggjendur göngunnar tilkynntu á miðvikudag að ætlunin væri að halda gönguna 27. júní.
„Í tilkynningaferlinu fyrir gleðigönguna 2026 og samtölum við skipuleggjendur, komu engar forsendur fram fyrir því að banna samkomuna,“ sagði lögreglan í yfirlýsingu til AFP-fréttaveitunnar. Þar segir jafnframt að lögregla hefði gefið út „fyrirmæli um takmarkanir“ vegna þriggja mótmælasamkoma. Þær verði leyfðar en séu aðskildar frá gleðigöngunni.
Metfjöldi í bannaðri göngu
Metfjöldi tók þátt í göngunni í fyrra þegar hún var bönnuð. Skipuleggjendur áætluðu að yfir 200 þúsund hefðu tekið þátt. Fólk kom víðsvegar að úr heiminum, meðal annars frá Íslandi.
Aðsóknin var talin skýr mótmæli gegn takmörkunum Orbáns á réttindum hinsegin fólks til margra ára, sem réttlættar voru undir því yfirskini að þær væru til „verndar börnum“. Þar sem gangan var bönnuð gátu þátttakendur búist við að verða sektaðir um alla að 500 evrur, jafnvirði rúmlega 70 þúsund króna. Ekki kom þó til þess að almennir borgarar yrðu sektaðir. Gergely Karacsony, borgarstjóri Búdapest, var aftur á móti áærður fyrir að skipuleggja gönguna og sama á við um Geza Buzas-Habel, sem skipulagði hina gönguna í Ungverjalandi í fyrra.
Evrópudómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu í apríl að löggjöfin frá 2021 - sem var breytt í fyrra til þess að banna gönguna - bryti í bága við reglur ESB.